Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1981, Side 61
Lífeyrissjóður sjómanna
Reglur um úthlutun íbúðarlána á árinu 1981 til sjóðfélaga
þetta að enda vel eða illa? Aflinn
er ágætur, á maður að hanga í
þessum síðustu spottum eða skera
frá og halda til lands? Manni
finnst að ekki sé nema hálfur
sigur, náist ekki öll veiðarfærin.
Þijóskast. — Þrjóskast, — draga,
— draga, þó að allt ætli af göfl-
unum að ganga. Loksins— það er
búið að draga, endabaujan er
komin inn.
Nú er að gera sjóklárt, binda
allt sem binda þarf, skálka lúgur,
reyna á allan hátt að búa bátinn
sem best til heimferðarinnar.
Þá kom það. Átti þetta að enda
svona?
Þeir voru tveir eftir á dekkinu,
standa við dekkspilið b.b.megin.
Ef til vill slaknaði augnablik á ár-
vekninni. Brotið kom æðandi á
b.b.hliðina, allt í bólakaf, þilfarið
fullt af sjó og engir menn sjást. Já,
eins og til að reka smiðshöggið á
þetta kemur annað brot í kjölfar
hins fyrra og allt er í grænum sjó.
Þetta tók styttri tíma en að segja
fráj)ví.
Eg þori ekki að hreyfa skrúf-
una, ekki setja á ferð. Hafi menn-
irnir lent útbyrðis getur skrúfan
skaðað þá, og þó fátt verði gert til
bjargar við svona aðstæður má ég
þó ekki drepa þá með skrúfunni.
En — guði sé lof — þeim hafði
tekist að skjóta sér inn í hvalbak-
inn og voru þar í fullu fjöri.
Ég sneri bátnum á stefnuna
heim, sú ferð gekk ágætlega.
Jónas hafði miklar áhyggjur út
af konu sinni og fór til sálfræðings
til að fá ráðleggingar. — Hún
Jóna mín er orðin sjúklega hrædd
um að fötunum hennar verði stol-
ið. Núna um daginn þegar ég kom
heim, var hún búinn að ráða
mann til að gæta fatanna i fata-
skápnum.
VÍKINGUR
Almennar reglur:
Heildarlánsfjárhæð er nýkr.
80.000.-. Lánstími er 20 ár, eða
styttri, ef óskað er.
1. Þeir, sem greitt hafa iðgjöld
til Lífeyrissjóðs sjómanna og líf-
eyrissjóða innan Sambands al-
mennra lífeyrissjóða (SAL) sam-
anlagt í 800daga, þaraf a.m.k. 180
daga á síðustu 12 mánuðum í Líf-
eyrissjóð sjómanna, eiga kost á
62,5% af heildarláni, þ.e. nýkr.
50.000.-. Til frádráttar af
hundraðshluta lánsfjárhæðar
kemur hundraðshluti af heildar-
láni, sem sjóðfélagi hefur fengið
hjá lífeyrissjóði innan SAL.
2. Þeir, sem greitt hafa iðgjöld
til Lífeyrissjóðs sjómanna og líf-
eyrissjóðs innan SAL samanlagt í
1800 daga, þar af a.m.k. 180 daga
á síðustu 12 mánuðum í Lífeyris-
sjóð sjómanna, eiga kost á
heildarláni, nýkr. 80.000.- að frá-
dregnum hundraðshluta fyrri lána
hjá Lífeyrissjóði sjómanna og/eða
SAL-sjóðum.
Aths.: Við samanburð við fyrri
lánareglur sjóðsins er lán skv. 1.
frumlán (nýkr. 50.000.-), en mis-
munur á láni 1. og 2. viðbótarlán
(nýkr. 30.000.-)
Sérreglur:
1. þeir, sem greitt hafa iðgjöld í
2.800 daga í Lífeyrissjóð sjó-
manna eingöngu, eiga kost á láni
að fjárhæð nýkr. 12.000.- til 5 ára.
2. Þeir, sem greitt hafa iðgjöld í
5.000 daga í Lífeyrissjóð sjó-
manna eingöngu, eiga kost á
lánsfjárhæð skv. mati stjórnar
sjóðsins hverju sinni.
Verðtrygging og vextir:
Lánin eru verðtryggð að fullu
skv. lánskjaravísitölu. Vextir eru
2% á ári, en heimilt er að hækka
þá, ef útlánsvextir verðtryggðra
skuldabréfa hækka lögurn sam-
kvæmt.
Verðtrygging:
Lán er veitt gegn veði í íbúð
lántakanda. Ef um nýsmíði er að
ræða verður hún að vera fokheld
skv. vottorði byggingarfulltrúa.
Leyfa skal önnur lán á undan láni
frá lífeyrissjóðnum, en hvorki
fjárnám né lögtak. Þá mega önnur
lán og lán frá lífeyrissjóðnum
samanlagt aldrei fara fram úr 50%
af brunabótamati íbúðarinnar.
Stjóm lífeyrissjóðsins er heim-
ilt, þegar sérstaklega stendur á, að
veita sjóðfélögum íbúðarlán, þó
að þeir séu ekki sjálfir íbúðareig-
endur.
Lánsumsókn og fylgigögn:
Lánsumsókn skal verða skrifleg
og skal umsækjandi láta veðbók-
arvottorð og brunabótamat þeirr-
ar fasteignar, sem hann hyggst
setja að veði, fylgja umsókninni.
Þá kann einnig að þurfa sigling-
arvottorð, ef sjóðnum hafa ekki
borist nýlega skilagreinar vegna
umsækjanda.
Afgreiðslumáti:
Lánsumsókn fer fyrir fund
stjórnar Lífeyrissjóðs sjómanna,
sem er að jafnaði haldinn einu
sinni í mánuði (sumarleyfi und-
anskilið). Athuga má simleiðis,
hvort umsókn hefur verið sam-
þykkt, strax daginn eftir fund og
getur skuldabréf þá verið tilbúið
til þinglýsingar fljótlega eftir það.
Umsækjandi sér sjálfur um að láta
þinglýsa skuldabréfi og greiðir
þinglýsingarkostnað. Lánið er
greitt út, þegar skuldabréfinu er
skilað þinglýstu, enda sé það á af-
greiðslutíma (kl. 9.15—15.00).
61