Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1981, Side 66

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1981, Side 66
Hún hentist upp á bakið á mér Þá er það eina nóttina að mig dreymir draum. Mér finnst ég standa fyrir utan húsið þar sem ég bý. Veður er gott og ég sný mér til suðurs. Þá veit ég ekki fyrr til en ókunnug stelpugála hendist upp á bakið á mér, krækir handleggjun- um utan um hálsinn á mér en fót- unum fram fyrir mig, þannig að ég er sem í skrúfstykki. Mér finnst ég ætla að kikna undan þessu fargi og bið stelpuna að fara af bakinu á mér því ég sé veikur og þoli þetta ekki. Þá svarar hún: „Ég sleppi þér ekki nema þú getir borið mig upp í herbergið þitt.“ Svo mikil alvara og illkvittni fylgir þessum orðum að mér stendur þegar beygur af þeim. Þessi kvenmaður minnir mig á einhverja skottu eða draug sem ég hef lesið um. Ég veit að ekki þýðir annað að gera en eins og hún skipar. Ég staulast því af stað með hana á bakinu. Þetta er mér óskapleg þrekraun, því upp tvo stiga er að fara og er sá seinni bæði brattur og langur. Síðan þarf ég að fara í gegnum forstofu og eldhúsið til að komast inn í herbergið mitt. Þegar þangað er náð er ég að þrotum kominn. Þó drattast ég í áttina að svefnbekknum mínum en féll þá framyfir mig. Þó hef ég náð það langt að ég lendi á bekknum. Og í því vakna ég, laus við byrði mína og sjúkdóminn líka, því upp frá þessu fór mér dagbatnandi. Ég endurheimti matarlystina og át nú dag og nótt. Ég man ekki nákvæmlega hve lengi ég var búinn að vera í aftur- bata þegar farið var með mig inn á Vífilstaðahæli til skoðunar. Mig minnir að yfirlæknirinn þar væri Sigurður Magnússon. Að skoðun lokinni sagði hann að á bakvið lungun væru þrymlar á stærð við krækiber. Þá var læknir á Dalvík Sigurjón Jónsson. Hefði hann ekki verið þar, hefði Sigurður ekki sleppt mér heim, því Sigurjón þótti góð- ur læknir og ekki ókunnur berklaveikinni á þessum árum. Einhver meðul fékk ég ásamt bréfi til Sigurjóns og átti ég að hafa samband við hann þegar heim væri komið. Eftir lokin komst ég heim með félögum mínum og allt kaupið fékk ég óskert og bjóst ég satt að segja ekki við því. Báðir ánægðir Þegar heim var komið fór ég strax til Sigurjóns eins og ég hafði lofað. Þetta sumar var ég ráðinn á bát sem hét Hugur. Þegar ég var búinn að tala við Sigurjón styn ég því upp hvort ég megi ekki fara á sjóinn. Hann þagði dálitla stund áður en hann sagði: „Með einu skilyrði. Ef þú hefur með þér hitamæli á sjóinn og mælir þig kvölds og morgna og gefur mér vikulega skýrslu, þá leyfi ég þér að fara. Annars ekki.“ Ég var ekki lengi að samþykkja það og þar með kvaddi ég, glaðari en ég hafði komið. Á sjóinn fór ég með hitamælinn í pússi mínu. En hvernig hann var notaður er önnur saga. En viku- skýrsluna fékk Sigurjón, þótt tölur væru oft skáldaðar á þá skýrslu, því satt best að segja var ég lengi með hitaslæðing. En ég stóð við mitt og læknirinn fékk sitt og voru því báðir ánægðir. Þar til um veturinn. Þá var kennd hér leikfimi og var ég einn af nemendunum. Ég tók líka þátt í leiklistarstarfsemi sem hér var á vegum ungmennafé- lagsins. Það var því nóg að gera og oft komið fram á nótt þegar ég kom heim. Einn daginn fannst mér ég vera óvenju slakur. Þegar ég hélt um brjóstið hægra megin og dró djúpt andann, var eins og ég væri að kreista blautan snjó. Ég vissi að það væri eitthvað að og fór því til Sigurjóns læknis. Hann dreif í mig hitamælinn og sá skratti hljóp upp í 39 stig án þess að hika. Síðan var ég hlustaður. Eftir þessa rannsókn fékk ég svo að heyra niðurstöð- una. Bullandi brjósthimnubólga. Eftir skammir og nærri kjafts- högg frá lækninum rak hann mig heim og skipaði mér að fara bein- ustu leið í rúmið. Þar lá ég þrjár vikur. Ég naut góðrar umönnunar móður minnar, þótt hún hefði í mörgu að snúast og þyrfti að hugsa um stórt heimili. Afi minn lá þá rúmfastur og á sama tíma gróf í kinninni á fósturbróður mínum. Og allir voru á sömu í sömu baðstofukytrunni... það hefði þótt slæmt ástand í dag. En hvað um það. Ég yfirsteig veikindin og síðan get ég varla sagt að mér hafi orðið misdægurt, þrátt fyrir slarksama vinnu við misjöfn skilyrði. G.A. skráði Hjörtþor hét maður nokkur í Vestmannaeyjum. Ein- setumaður var hann og bjó í kofa niðri við höfn. Ekki var hann frómur talinn, en girntist þó fátt annað verðmætt en veiðarfæri sem hann sankaði að sér í kofann. Eitt sinn fóru útgerðarmenn með lögreglu að skúr hans og kröfðust þess, að leit væri gerð. — Gerið þið svo vel, sagði Hjörtþór og opnaði skúrinn upp á gátt, — Hirði nú hver sitt, en passið bara að stela ekki hver frá öðrum. 66 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.