Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1995, Blaðsíða 8
Súðavík og Suðureyri eru ekki ein-
ungis tvö dæmigerð sjávarpláss sem
standa nærri hvort öðru, þar búa ámóta
margir íbúar, eða rúmlega 200 á Súðavík
og rúmlega 300 á Suðureyri.
Sjávarútvegur er nánast eina atvinnu-
greinin á báðum stöðum. Þegar skoðað
er hversu mikill kvóti er til á þessum
sambærilegu stöðum kemur í ljós að þar
ber verulega mikið á milli. A Súðavík
eru tæp tólf tonn á hvern íbúa á meðan
á Suðureyri eru aðeins 366 kíló á íbúa.
Til samanburðar um hversu aumt
ástandið er á Suðureyri má geta þess að í
Reykjavík eru 278 kíló af kvóta á hvern
íbúa. Það þarf ekki að fara mörgum
orðum um hversu miklu minna máli
sjávarútvegur skiptir Reykvíkinga en
íbúa Suðureyrar.
Af þessu má sjá hversu illa kvótakerfið
hefúr leikið nokkur byggðarlög; byggð-
arlög sem eiga jafnvel allt sitt undir sjáv-
arafla.
f blaðinu er að finna lista yfir kvóta-
eign á hvern íbúa flestra kaupstaða og
kauptúna á landinu.
Það má taka fleiri dæmi. Á Grund-
Stærstu útgerðarfélögin
1. Grandi 15.738
2. Útg.fél. Akureyringa 13.895
3. Samherji 9.242
4. Skagfirðingur 7.527
5. Haraldur Böðvarsson 6.565
6. Skagstrendingur 5.725
7. Vinnslustöðin 5.615
8. Ögurvík 5.459
9. Síldarvinnslan 4.660
10. Miðnes 4.578
11. Sæberg 4.438
12. Útg.fél. Dalvíkinga 4.400
13. ísfélag Vestmannaeyja 3.507
14. Þormóður rammi 3.450
15. Kirkjusandur 3.346
16. Stálskip 3.321
17. Þorbjörn 3.248
18. Hrönn 2.920
19. Gunnarstindur 2.905
20. Hraðfr.h. Grundarfj. 2.881
arfirði og Patreksfirði búa ámóta margir,
eða á níunda hundrað manns. Grund-
firðingar ráða yfir sjö og hálfú tonni á
hvern íbúa en Patreksfirðingar hafa tvö
og hálft tonn á mann.
Á síðustu fimm árum hefur ekkert
landsvæði misst eins mikinn kvóta og
Suðurfirðir Vestfjarða. Á þessu tímabili
hefur farið þaðan yfir fimm þúsund
tonna kvóti, eða um 58 prósent af kvót-
anum.
Einnig má sjá að frá Suðurfjörðum
Vestfjarða hefur verið færður nærri
4.500 tonna kvód á síðustu fimm árum.
Þetta segir okkur að stjórnendur
útgerðarfyrirtækja á þessu landsvæði
hafa með einhverjum hætti misst frá sér
þetta mikinn kvóta. Það er eflaust ein-
földun að draga eingöngu aðra en
heimamenn til ábyrgðar.
Hér má finna úttekt á kvótanum og
tekin nokkur dæmi af hinum ólíkleg-
ustu hliðum þess fiskveiðistjórnunarker-
fis sem við búum við.
Þegar skoðað er hvernig kvótinn
skiptist nú milli einstakra byggðarlaga
og héraða má sjá að það sitja ekki allir
við sama borð og hagsmunir eru
ólíkir. ■
ÖRUGGT MAL
Skipavog S -120
Skipaflokkari
Skipaþrennan frá PÖLS - hörkutól að vestan
• Ending og þol viö heimsins erfiöustu aðstæður
• Hagkvæm lausn
• Vigtun, skömmtun, flokkun, eftirlit, skráning
Skipavog S-125
o
PÓLS Markaðsdeild • Ármúli 36 • Pósthólf 8836 • 128 Reykjavik • Sími 588 5115 • Fax 588 5116 • Telex 2253 Poles is.
8
VÍKINGUR