Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1995, Blaðsíða 36
VÍKINGUR
Þjónus
tusídur
Umsión: Olafur A. Guðmundsson
Sjóminja- og smiðimunasafn
J. Hinrikssonar
I október ó þessu óri eru li&in
sjö ór fró opnun Sjóminja- og
smi&jusafns J. Hinrikssonar í
Súðarvogi 4 í Reykjavík.
Ahuga Jósafats Hinrikssonar,
stofnanda og framkvæmda-
stjóra J. Hinrikssonar hf., ó
tækjum og búnaði tengdum
sjóvarútvegi Islendinga mó
rekja til bernskuóranna í
Neskaupstað, þar sem allt
snerist um útgerð bóta og
skipa.
Fyrsta vísinn að söfnunar-
áráttu Jósafats má rekja til
barndóms hans, en hann á
meðal annars sín fyrstu bólu-
setningarvottorð frá þriggja
ára aldri, allar einkunnir
sínar úr barnaskóla og for-
láta verkfæri sem hann keypti
sem strákur, ásamt verðmerk-
tum pakkanum.
Við störf sin sem vélstjóri á
mótorbátum, línu- og síldar-
bátum og á nýsköpunartogu-
runum jókst áhugi hans á
gömlum hlutum og þá einna
helst sem tengdust útgerð,
fiskveiðum og járnsmiði.
Samhliða uppbyggingu
fyrirtækisins og sölu á Poly-
lce-toghlerum, sem hafa notið
fádæma vinsælda hér heima
og eru fluttir út til meira en
tuttugu landa, hefurjósafat
unnið einstakt framtak í varð-
veislu gamalla muna sem
tengjast járnsmiði á Islandi.
A þessum sjö árum hefur
safninu borist mikill fjöldi
gamalla og áhugaverðra
muna og má segja að vart
líði sá dagur að safninu
berist ekki einn eða fleiri hlut-
ir sem eiga sína eigin sér-
stæðu sögu.
A safninu, sem er sjálfseign-
arstofnun, er reynt að sýna í
verki og gefa sem gleggsta
mynd af gömlum atvinnuhátt-
um hér á landi.
Fyrirtækið Myndbær gerði
fyrr á þessu ári um tuttugu
mínútna heimildamynd um
safnið og að hluta til um J.
Hinriksson hf. Myndin var
sýnd síðasta sjómannadag
og vakti mikla athygli.
Foroya Sjónvarp í Færeyjum
hefur nú fengið eintak af
myndinni og verður hún sýnd
þar á næstunni með færeysk-
um texta og tali.
Safnið er opið almenningi frá
þriðjudegi til laugardags frá
kl. 13.00 til 17.00 og eru
allir sem áhuga hafa á varð-
veislu gamalla muna hvattir til
að skoða safnið. Einnig geta
þeir sem áhuga hafa fengið
aðgang að safninu á vinnu-