Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1995, Blaðsíða 43
Sædís ÍS 67 en Pálmi Sveinsson var skipstjóri á bátnum í stríðinu.
Orrustuskip bandamanna voru aldrei óhult fyrir kafbátum Þjóðverja.
talsvert og það hefur auðvitað verið af
þeirri friðun sem stríðið hafði
óhjákvæmilega í för með sér fyrir fiskinn.
Við vorum margsinnis að slíta línuna á
þessum tundurduflabúnaði og seinna sá
maður hve við höfðum oft farið óvar-
lega, því við reyndum stundum að fara í
hring, til þess að losa línuna af þessum
fjanda. Auðvitað bliknuðu strákarnir
svo, þegar þeir sáu hvað það var sem við
vorum að glíma við. Línan var þá föst á
strengnum sem tundurduflin lágu við.
Eitt sinn sáum við glitta í sjálft tund-
urduflið rétt undir hælnum á bátnum.
Hefði línan flækst á takka á þessu hefði
varla verið að sökum að spyrja.
Þessi dufl voru stórar kúlur, þó fremur
perulaga. Var lok á þeim efst, en takkar í
kring.
Aldrei varð samt slys af þessu og lík-
lega hafa bátarnir verið nógu smáir til
þess að við sigldum ofan við þetta. A
Djúpinu gerði oft heilmikil veður og þá
slitnaði þetta upp og var á reki um
Djúpið. Við vissum auðvitað af þessu og
því voru menn stöðugt á verði og skim-
andi fram fyrir bátinn í sjóferðunum.
Við sáum tundurduflin iðulega á reki
þarna um sjóinn.
Við komum auga á margvíslegt rekald
á þessum ferðum, sem minnti á að mikil
átök áttu sér stað úti á hafinu. Við sáum
oft látna menn í bjargbeltum. Ég minn-
ist þess að einu sinni tók ég upp lík úr
sjónum og flutti með mér í land. A lík-
inu voru skilríki. En það kom svo á
daginn að Bretunum var ekkert um það
gefið að við værum að hirða þetta upp og
því létum við þetta eiga sig upp frá því.
Þegar litið er aftur til þessara ára held
ég að margir hafi ekki gert sér grein fyrir
því hve mikil hætta var þarna á ferðum
fyrir þessa báta. Hvað tundurduflin
varðar og þessar veiðar okkar þar, þá
man ég að það var haldinn fundur á
ísafirði, til þ ess að fá okkur til að hætta
veiðum á þessum svæðum, og ég held að
það hafi dregið úr þessu eftir það. En það
veiddist vel þarna og ég fékk þarna
marga góða róðra.“ ■
■ Fjarkennsla í 55 ár -
Hlemmi 5. II. hæð, 105 Reykjavík.
Sími: 562 97 50. Bréfsími: 562 97 52.
Rafpóstur:brefask@ismennt.is
Vefsíða: http://rvik.ismennt.is/~brefask/
Afgreiðslan er opin frá 10 til 15 alla virka daga.
Símsvari tekur við skilaboðum utan afgreiðslutfma.
Póstsendum hvert sem er.
VlKINGUR
43