Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1995, Blaðsíða 31
fyrir þá upphæð fá menn aðstoð við að
afla upplýsinga um allt að fjögur tæk-
ifæri eða efnissvið.
Sjálfstæðir menn sem hafa nægan
sjálfsaga og þurfa ekki daglegan eftir-
rekstur kennara geta haft verulegt gagn
af þessari þjónustu. Þeir fá þýðingar-
mikla aðstoð við að afla nýrrar og
sérhæfðrar þekkingar og upplýsinga
fyrir lágmarksfé.
Eins og sjá má þá er gjald það sem
UH tekur mjög lágt miðað við annað
sem býðst. Vilji menn hefja hefðbund-
ið nám er það oftast miklu dýrara auk
þess sem það er bindandi. Við þetta
bætist að sé einungis stefnt að því að
skapa sjálfstæðan atvinnurekstur er ekki
sérstök þörf á starfsréttindum.
Grunnurinn í þjónustu UH er um
600 gagnasöfn á jafnmörgum efnissvið-
um sem byggð hafa verið upp á síðast-
liðnum átta árum. Þau nýtast til að afla
upplýsinga með miklum hraða. í þessu
sambandi vísast til meðfylgjandi um-
mæla nokkurra viðskiptavina UH.
„ Undirritaður komstfyrst í kynni við Upplýsingaþjónustu
Háskólans í vetur sem leið. Við vorum þá nýbúnir að
stofna tölvugrafíkfyrirtœkið OZ hf, sem er sérhœft tölvu-
grafíkfyrirtœki, eitt sinnar tegundar á íslandi. Mjög erfitt
var að nálgast upplýsingar um tölvugrafík hérlendis.
Undanfarin tvö ár hafði ég lagt stund á heimspeki við HI
ogþekkti því til UH. Við höfðum samband við Jón
Erlendsson og útlistuðum vandann. Strax daginn eftir
okkar fyrsta samtalfengum við sendpóntunarbréffyrir
fagtímarit frá UH. Jafnframt benti Jón okkur á bœkur sem
hann bauðst til að panta fyrir okkur. Hœstánœgðir með
þjónustuna höfum við verið í stöðugu sambandi síðan.
„UH hefur reynst okkur sérlega vel. Pað er sama um hvað
er spurt; aldrei líður á löngu áður en faxið fer af stað og
upplýsingarnar frá Jóni streyma úr tœkinu.
Tilkostnaðurinn er smávœgilegur miðað við þjónustuna
sem UIJ veitir. “
Skúli Mogensen, framkvæmdastjóri OZ hf.
Eg hef verið að leita mér upplýsinga um sérhœft tœki
varðandi atvinnurekstur minn og átti í bréfaskriftum
vegna þess en orðið lítið ágengt. Mér var bent á Jón
Erlendsson, hjá Upplýsingaþjónustu Háskólans, sem ég
gerði. Jón boðaði mig á sinnfund nœsta dag. Eftir að ég
lýsti því sem mig vanhagaði um sagðist hann ganga í
málið. Eflir fundinn með Jóni ók ég í Garðabœ og þegar ég
kom inn var faxið í gangi og upplýsingarnar um tœkið
lágu á borðinu. Pað er með ólíkindum hvað hœgt er að
ajkasta miklu á stuttum tíma efleitað er til réttra aðila.
^^mi^mm^^m^^^mmmmmmmmmmmmmt^^^^^^^^mmmmmmm^^^^m Birgir Björgvinsson
SJÁLFSNÁM KEMUR MÖRGUM
AÐ GAGNI
Nú kunna sunir að halda að lítið
gagn sé í sjálfsnámi. Svo er þó ekki.
Ótalmargir íslendingar hafa skapað sér
sjálfstæð tækifæri með því að nema
sjálfir. Margir þeirra hafa þar að auki
ekki notið neins stuðnings við að afla
upplýsinga. Við slíkar aðstæður lenda
menn oft í því að það sem tekur UH off
ekki nema klukkustundir eða daga
í stuttu máli sagt, þegar ég hafði lagt mitt erindifram á
Skrifstofu Upplýsingaþjónstunnar, varþegar hafist handa
og á örstuttum tíma var erindi mínu komið á framfœri við
þá aðila sem ég var að leita eftir. I þessu fólst að gengið
var frá bréfum til um það bil 1 0 erlendra lykilaðila á
innan við 15 mínútum.
^^^^m^^m^^^^^^mmmmmmmmmmmmmmm^^^^^^^^^^^^^^m Skæringur Hauksson
VlKINGUR
31