Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1995, Blaðsíða 30
Jón Erlendsson, yfirverkfræðingur hjá Upplýsingaþjónustu Háskóla íslands,
greinir hér frá þjónustu fyrir þá sem vilja skapa sér nýjan grundvöll í atvinnulífi.
Nú þegar að kreppir í veiðum eru margir sjómenn farnir að hugsa sér
til hreyfings. Ljóst er að margir verða að hœtta sjómennsku ogfara í
land afþessum ástæðum. Það sama gildir um marga sem verið hafa
lengi á sjó og vilja eyða síðari hluta vinnucevinnar í landi með fjöl-
skyldum sínum.
Vandinn er bara sá að ekki er að miklu
að hverfa þessa stundina. Barist er um
flest störf sem eru á lausu. Því er ljóst að
margir verða að huga að því að skapa sér
atvinnu sjálfir. Þetta er á hinn bóginn
erfiðara en nokkru sinni fyrr. Miklu
torsóttara er þannig að fara í kjölfar
annarra og stofna fyrirtæki lík þeim sem
fyrir eru hér á landi. Margir hafa farið
flatt á því að ætla sér að hagnast á því að
herma eftir öðrum á undanförnum ár-
um. Skyndileg ofmettun í einstökum
greinum, sem átt hefur sér stað af þessari
ástæðu, hefur komið harkalega niður á
afkomu og breytt arðvænlegum rekstri
víða í sultarkropp. Og vegna almenns
samdráttar verður æ erfiðara að stunda
eftirhermur í flestum hefðbundnum
atvinnurekstri þegar nánast allar greinar
eru þegar ofmettaðar.
NAUÐSYN NÝRRAR NÁLGUNAR
Við þessar aðstæður er eðlilegt að
menn leiti nýrra leiða. Afli sér nýrrar
þekkingar og reyni að finna ný tækifæri
þar sem samkeppni er lítil og því von um
hagnað. Þetta er á hinn bóginn ekki
auðvelt. Vilji menn setjast á skólabekk
innanlands þá kostar það oft margra ára
vinnu. Við þetta bætist að námsframboð
er fremur takmarkað hér á landi miðað
Upplýsingaþ/ónusta
Háskólans var stofnuð
1978. Hún varfyrsta
innlenda stofnunin sem
hagnýtti sambönd við
erlenda gagnabanka. Á
þeim sautján árum sem hún
hefur staifað hefur hún
unnið að yfir 3.000
verkefnum afmjög fjöl-
breytilegu tagi fyrir innlend
fyrirtœki, einstaklinga og
stofnanir.
við það sem erlendis þekkist. Hefji menn
á hinn bóginn nám í útlöndum er slíkt
oft dýrara en góðu hófi gegnir. Kostn-
aður við það nemur oft mörgum
milljónum.
Enn einn kosturinn er sá að sækja
námskeið hér á landi. Sá galli er á þessu
að framboðið er tiltölulega takmarkað og
varðar yfirleitt einungis öflun vissrar
grunnþekkingar. Sá sem hefur augastað á
einhverju sérstöku tækifæri í framleiðslu
eða þjónustu fær sjaldnast neitt sem máli
skiptir um það á námskeiðum, sem
fjalla, eðli málsins samkvæmt, einungis
um viss grunnatriði.
ÞJÓNUSTA UPPLÝSINGA-
ÞJÓNUSTU HÁSKÓLANS
Upplýsingaþjónusta Háskólans (UH)
hefúr um átta ára skeið unnið að því að
þróa nýja tegund þjónustu til að leysa
vanda þeirra sem þurfa að skapa sér ný
og sérhæfð atvinnutækifæri sem krefjast
bæði nýrrar þekkingar og eins hverskyns
sambanda og sérhæfðra upplýsinga.
Þjónusta þessi er kölluð „Skipulegt
sjálfsnám um atvinnumál og tækifæra-
sköpun" (SSAT). Um er að ræða aðstoð
við að afla fræðslurita, sambanda og
hverskyns tæknilegra og viðskiptalegra
upplýsinga. Að auki er leiðbeint við
öflun þekkingar um flest er lýtur að stof-
nun og rekstri smáfyrirtækja.
Þátttakendur nema að mestu sjálfir það
sem máli skiptir. UH aðstoðar á hinn
bóginn við að svara spurningum sem
upp koma. Gjaldið er 20.000 krónur og
30
VÍKINGUR