Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1995, Blaðsíða 49
inum Latsis árið 1986 og er skipið enn í
eigu hans. Ber það nafnið Hellas Fos og
var nefnt hér áður. Enn eru ónefnd tvö
þeirra skipa sem náðu yfir hálfrar milljónar
tonna markinu, en þau voru systurskipin
Esso Atlantic, sem nú heitir Kapetan
Giannis, og Esso Pacific, sem nú heitir
Kapetan Michalis. Þau eru 516.000
burðartonn.
Eftir lenginguna á Seawise Giant fór
skipið tvær ferðir frá Persaflóa, þá fyrri til
Japans en þá síðari í Mexíkóflóa. Þegar
þessum ferðum lauk var skipið notað sem
geymsluskip í Aruba fram í apríl 1982. Þá
var skipinu lagt þar og síðan flutt í desem-
ber sama ár til Trinidad til áframhaldandi
legu. í maí 1983 og fram á mitt ár 1986
var skipið notað sem geymsluskip í
Mexíkó. I október kom skipið til Hormuz
Terminal í íran til áframhaldandi notku-
nar sem geymsluskip. Þann 14. maí 1988
varð Seawise Giant fyrir sprengjuárás frá
írökum, en þá stóð Persaflóastríðið sem
hæst. Þegar skipið varð fyrir árásinni var
það að dæla olíu yfir í spánska olíuskipið
VLCC Barcelona. Yfirbygging skipsins og
vélarrúm urðu fyrir gííúrlegum skemmd-
um í sprengingunni og eldur kviknaði í
því þegar olía flæddi út úr rifnum farm-
tönkum. Þrír skipverjar fórust. Skipið var
dæmt ónýtt eftir.
A miðju ári 1989 var skipið selt Nor-
man Internadonal A/S í Osló og nefnt
Happy Giant. Hafði skipið verið dregið
frá Hormuz til Ulsan í Japan þar sem
kannanir á skemmdum fóru fram. Síðan
var skipið dregið til Brunei þar sem því var
lagt þar til það var dregið til Singapor í
október 1990. Hjá Keppel-viðgerða-
stöðinni fór fram umfangsmikil viðgerð á
sldpinu þar sem yfirbyggingin var fjarlægð
og ný sett á. Skipt var um 3.200 tonn af
járni úr skemmdum tönkum skipsins sem
og 32.000 metra af rörum. Viðgerðin á
skipinu kostaði ekki neitt smáræði eða 62
milljónir dollara. Meðan á viðgerðinni
stóð var það selt Jahre Shipping í
Sandefjord í Noregi og þá nefnt Jahre
Viking. Skipið var síðan tekið í þurrkví í
Dubai, þar sem ekki voru nægjanlega
stórar þurrkvíar í Singapor til að taka skip-
ið upp. Þegar viðgerð á skipinu lauk hélt
það til Saudi-Arabíu til lestunar á farmi á
ný. Hófst fyrsta ferðin með farmi 25.
nóvember 1991 en frá því skipið var
smíðað og til þess dags hafði það einungis
farið fjórar ferðir með farm. Næstu árin
var skipið að mestu í flutningum milli
Persaflóa og Mexíkóflóa en fór einstaka
ferðir frá Saudi-Arabíu til Ain Sukhna í
Egyptalandi (fyrir sunnan Súez).
Eins og sagði í upphafi þá kom skipið í
fyrsta sinn til hafnar í Evrópu í janúar sl.
og var farmur þess samtals 542.400 tonn
af olíu sem losuð var í Antifer, sem er um
20 km fyrir norðan Le Havre. Þegar hefúr
verið ákveðið að skipið komi aðra ferð til
Frakklands á þessu ári.
Þótt einungis fjögur þeirra sjö risa sem
voru stærri en hálf milljón tonna séu enn í
notkun þykir fátt benda til þess að í
framtíðinni verði aftur ráðist í smíði á
slíkum ferlíkjum, enda breytti opnun
Súesskurðar miklu um olíuflutninga um
heimsálfuna. Hilmar Snorrason
Ahugaverðasta tœkninýjung í öryggisbúnaði sjómanna sem fram hefur
komið í langan tíma. Hann er minni en spilastokkur að stœrð
Líflínu neyðarsendirinn frá SEA-MARSHALL.
L í F L í l\l A
GÆTIGERT
GÆFUMUNINN
Hann sendir út á tíðnisviði 121,5 MHZ, neyðarbylgju
sem flugvélar og jafnvel gervihnettir nema og staðsetja
í öllum veðrum og við öll veðurskilyrði. Komdu og
kynntu þér ótvírœða kosti Líflínu Björgunarkerfisins
sem getur bjargað mannslífum. Oryggi fyrir minna
verð en þú átt von á.
TITANhf
Lágmúla 7
Sími: 581 4077
Fax: 581 3977
vIkingur
49