Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1998, Page 22
Umsjón: Hilmar Snorrason
nt/tn nr Aeimi
Erfitt
að rífa
skipið
Niðurrif skipa er enginn
barnaleikur og jafnvel fyrir
reyndustu niðurrifskallana
geta málin stundum tekið á
sig aðra mynd en í upphafi
var talið. Fyrir nokkrum
blöðum síðan var sagt frá
gamla stolti breska flotans
Canberra sem seld var til
niðurrifs hjá Gadani Beach í
Pakistan. Erfiðlega gekk
að koma skipinu á land en
sökum djúpristu komst
skipið ekki nánda nærri
landi eins og gert hafði ver-
ið ráð fyrir. Engu að síður
héldu menn sig við áætlun-
ina um að rífa skipið sem
var 49.000 tonn að stærð á
þremur mánuðum. Enn
hefur ekki verið lokið við að
rífa skipið rúmu árið síðar. I
Ijós kom að innréttingar
skipsins voru ekkert rusl og
mun efnismeiri en talið var í
fyrstu eða eins og sagt er
massíft skip. Það er engu
líkara en að skipið berjist
harðri baráttu við að verða
ekki afmáð af yfirborði
jarðar. ■
Tjón í Atlantshafi
Samkvæmt upplýsingum
frá Salvage Association þá
voru mun meiri skaðar á
gámaskipum í Norður At-
lantshafi en áður hefur
þekkst. Ástæða þessa telja
samtökin vera verri veður í
hafinu, siglt með of mikilli
ferð og lélegur sjóbúnaður
um borð í skipunum. ■
Heimsflotinn
Stærð heimsskipaflotans
voru 1,820 skip smíðuð sam-
Hér kemur síðan listi yfir
árið 1997 var nýlega gefin út af
tals 25,2 milljón tonn og voru
stærstu skipastóla heims
Lloyd’s Register of Shipping's.
Hér koma helstu tölur fyrir árið
1997. í árslok var fjöldi skráðra
skipa hjá Lloyd's 85,494 skip
sem samtals voru 522,2
milljón tonn en þar af voru
flutningaskip 45,097, samtals
757,84 milljón burðartonn
(DW). Meðalaldur heimsflotans
var 19 ár þar sem gámaskipin
voru með lægsta meðalaldur
eða 10 ár. Hæsti meðalaldur er
hjá farþegaskipum og flutn-
ingaskipum (general cargo)
sem var hvorki meira né minna
en 30 ár. í þeim flokki voru ein-
ungis 342 skip sem samtals
voru 600,000 tonn. Meðalald-
ur olíuskipa var 18 ár. Á árinu
flest þeirra smíðuð í Japan og ásamt stærð og meðalaldri
Suður Kóreu eða 71 %.
I
I Land Fj. skipa stærð/tonn meðalaldur I
Panama 6.188 91.128 17
I Líbería 1.697 60.058 12
Bahamas 1.221 25.523 16
Gríkkland 1.641 25.288 24
Kýpur 1.650 23.653 16
Malta 1.378 22.984 19
Norequr 715 19.780 15
SinqaDúr 1.656 18.875 11
Japan 9.310 18.516 11
Kína 3.175 16.339 18
Rússland 4.814 12.282 17
Bandaríkin 5.260 11.789 24
Filippseyjar 1.699 8.849 22
St. Vincent 1.343 8.374 22
Suður-Kórea 2.441 7.430 20
Þvskaland 1.125 6.950 17
Indland 941 6.934 15
Tvrkland 1.146 6.567 23
Marshalleyjar 168 6.314 13
1.324 6.194 22
Hert eftirlit
Bresk yfirvöld hafa ákveðið
að skera upp herör gegn
skipum sem einungis hafa
einn mann á vakt á stjórnpalli.
Er þetta niðurstaðan í kjölfar
strandsins á gámaskipinu Cita
á síðasta ári. Skipið hafði í
eina tíð plægt öldur Atlants-
hafsins undir nafninu Lagar-
foss meðan það var í eigu
Eimskips. Norskur skipstjóri
var nýlega dæmdur til að
greiða 1000 punda sekt í
Bretlandi eftir að hann sofnaði
á vaktinni og eftir þriggja kor-
tera svefn hitti hann Bretlands-
eyjar með miklum látum. Nú
verða menn því að breyta um
stefnu hyggist þeir sigla áfram
með einn mann á stjórnpalli og
setja því kúrsinn til hafs svo
ekki verði eins mikil hætta á
ferðum sofni þeir á vaktinni. ■
Bretar eru komnir í herferð gegn einsmanns brú en þetta skip strand-
aði eftir að stýrimaðurinn sofnaði á vaktinni. (eina tíð hét skipið
Lagarfoss.
Morð-
tilraun
Það er erfitt að vera út-
gerðarmaður þegar erfið-
lega gengur en það getur
líka verið erfitt að vera vel
staddur. Þetta upplifði gríski
útgerðarmaðurinn Costas
Agapitos sem varð fyrir
morðtilraun í Riraeus í júlí
s.l. Sá sem hefur verið
ákærður fyrir verknaðinn er
einnig útgerðarmaður að
nafni Vangolis Ventouris.
Báðir voru þeir útgerðar-
menn ferja en Landsbanki
Grikklands tók flota Vang-
olis eignarhaldi og seldi
sum skipa hans til Costas
sem varð til þess að sá
fyrrnefndi reyndi að koma
félaga sínum yfir móðuna
miklu þar sem hann gæti
stundað sínar siglingar. ■
22
Sjómannablaðið Víkingur