Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1998, Síða 28
Halldór Blöndal samgöngu- og siglingamálaráðherra
hefur lagt fram frumvarp um nýskipan við rannsókn
sjóslysa. Hann ræðir það mál og ýmis fleiri í viðtali
við Sæmund Guðvinsson
Verðum að auka
öryggið og
Halldór Blöndal
samgönguráðherra
fer með yfirstjórn
siglinga-, hafna-
og vitamála. Sér j
til ráðgjafar um
þau mál hef-
hann hafnarráð og siglingaráð en í því síðar-
nefnda sitja fulltrúar ýmissa hagsmuna-
samtaka sjómanna, útgerðarmanna og
fleiri. I eftirfarandi viðtali ræðir Halldór
Blöndal um breytingar á rannsóknum
sjóslysa, frestun gildistöku reglugerðar um
GMDSS fjarskiptabúnaðar, stöðu íslenskra
farmannastéttar og sitt hvað fleira ber á
góma. Fyrst var ráðherrann spurður um efni
lagafrumvarps sem hann hefur lagt fram á
Alþingi um rannsóknir sjóslysa.
„Meginbreytingin í hinni nýju skipan um
rannsóknir sjóslysa er fólgin í því að með
þessu frumvarpi er því slegið föstu að rann-
sóknarnefndin skuli starfa sjálfstætt
og óháð stjórnvöldum og öðmm
rannsóknaraðilum, ákæru-
valdi og dómstólum. Nefndin ákveður sjálf
hvenær efni eru til rannsóknar sjóslyss um-
fram það sem henni er skylt að rannsaka með
hliðsjón af alþjóðasamþykktum sem ísland er
aðili að. Undanferin ár hefúr verið unnið að því
hjá Alþjóðasiglingamálastofnuninni að setja
alþjóðlegar reglur um rannsóknir sjóslysa og
var samþykkt ályktun um þær í nóvember í
fýrra. í frumvarpinu er lagt til að þær tillögur
verði alfarið lagðar til grundvalla um rann-
sóknir sjóslysa hér á landi. Meginbreytingin
verður sú að sjóslysarannsóknir verða algjörlega
sjálfetæðar og að því leyti gerðar hliðstæðar
rannsóknum flugslysa. Því er mjög brýnt að
sem bestur lagarammi verði myndaður um
rannsóknir sjóslysa hér. Það er ekki síst
nauðsynlegt til að tryggja annars vegar
réttaröryggi þeirra sem rannsókn beinist að
mm og hins vegar, og ekki síður, til þess að
markmiðum rannsóknar verði náð en þau
eru einungis að auka öryggi og fækka sjó-
slysum.
f þessu sambandi er það mikilvægt sem
segir í 12. grein lagafrumvarpsins að skýrsl-
um rannsóknarnefndar sjóslysa skuli ekki
beitt sem sönnunargögnum í opinberum
málum, enda er markmið sjóslysarann-
sókna samkvæmt lögum þessum að greina
28
SjÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR