Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1998, Qupperneq 44
Vígdrekar & vopnagnýr
Endalok þýska
kaupskipsins
Regensburg
Margt hefur verið ritað um umsvif erlendra herja á Islandi á
árum síðari heimsstyrjaldarinnar. Hafa augu manna einkum
beinst að gríðarlegum félagslegum áhrifum og efbahagslegri koll-
steypu sem fylgdi styrjöldinni og hernáminu. Hinum hernaðar-
legu þáttum og aðgerðum sem skildu milli feigs og ófeigs og réðu
umsvifum hins erlenda herliðs á landsvísu og í héraði hafa síður
verið gerð skil.
Bókin Vígdrekar og vopnagnýr, eftir Friþór Eydal, varpar ljósi
á þátt hers og flota og aðstöðu bandamanna hér á landi í orrust-
unni um Atlantshafið eins og þessi langvinnasta orrusta styrjald-
arinnar hefur verið nefhd. Sérstök áhersla er lögð á að skýra þá
þætti sem ekki hafa verið gerð skil í öðrum íslenskum ritum svo
sem umsvif flughers og flota, einkum í Hvalfirði, og hver þáttur
þeirra var í hernaðaraðgerðum á hafinu. þá eru önnur umsvif hinna
erlendu herja á íslandi skyrð rækilega í bókinni.
I ritdómi um bókina sem birtist í tímaridnu Sögu er þess getíð
að hvergi sé að finna á einum stað meiri ffóðleik um vígbúnað
Breski flotinn hafði verulegan viðbúnað
undan Vestfjörðum til að hefta siglingar
þýskra herskipa og kafbáta um Græniands-
sund í heimsstyrjöldinni síðari. Lögð voru
tundurduflabelti frá Straumnesi í norður- og
vesturátt að ísröndinni, eftirlitsskip voru þar
stöðugt á verði og ratsjárstöð, sem reist var á
hnjúknum Darra yst á Grænuhlíð árið 1942,
skyggndist um eftir óboðnum gestum. Er
meta á árangur af varnarviðbúnaðinum á
Grænlandssundi verður það einungis gert í
samhengi við önnur umsvif bandamanna á
Norður-Atlantshafi og víðar.
Þýsk herskip og kaupskip lögðu gjarna leið
sína um Grænlandssund á árunum 1939-
1941. Eftirófarir Bismarck vorið 1941 hættu
Þjóðverjar herskipum sínum ekki í slíka leið-
bandamanna á íslandi í síðari heimsstyrjöldinni og hernaðarum-
svif á og umhverfis landið.
Höfúndur hefúr víða leitað efúis og er vitnað til heimilda í lok
hvers kafla. Af útgefúum heimildum sem stuðst er við skal fyrst
telja viðurkennd, erlend ritverk um sjóhernaðinn á Atlantshafi.
Frumheimildir eru skjöl hernaðaryfirvalda sem geyma mikinn
ffóðleik og er stuðst við skyrslur og dagbækur, þ. á m. leiðarbækur
skipa, svo og dagbækur þýska kafbátaflotans, sem fæst hefúr birst
áður í íslcnskum ritum. Loks skal telja viðtöl og bréfaskriftir við
heimildarmenn, innlenda sem erlenda, er hlut áttu að máli, auk
ffæðimanna við sögustofnanir í Bretlandi, Bandaríkjunum og
Þýskalandi svo og innlend og erlend yfirlitsrit. Höfundur hefúr
kannað Ijósmyndasöfn erlendu herjanna allrækilega, en þau
geyma fjölda mynda af þeim umsvifúm sem lýst er. Margar slikar
myndir eru birtar með ítarlegum skyringum ásamt myndum úr
einkasöfúum.
angra. Með hernámi Frakklands vorið 1940
hafði þeim opnast leið um hafnir við Biska-
jaflóa, sem var þá mun áhættuminni fyrir
kaupskip er voru í förum með farma sjald-
gæfra og dýrmætra hráefna til hergagna- og
efnaiðnaðar sem Þjóðverja skorti. Má í þessu
tilefni nefna gúmmí, tin og volfram.
Jókst þessi þörf er leið á styrjöldina.
Ratsjáreftirlit með skipaferðum undan
Vestfjörðum hófst því of seint svo gagnast
mætti beint til að hefta þessar siglingar. Því
verður þó ekki á móti mælt að á sama hátt og
úthald herskipa Norðurgæslunnar og tundur-
duflalagnir undan Vestfjörðum gegndu mik-
ilvægu hlutverki við að fæla þýska flotann frá
því að nota þessa leið, og að fækka valkostum
hans til ferða út á Atlantshaf, þjónaði ratsjár-
stöðin á Darra mikilvægu varnarhlutverki á
þessum slóðum. Á meðan þýskir bryndrekar
höfðu aðsetur í Norður-Noregi allt til ársins
1944 mátti ávallt búast við að þeim yrði beint
þessa leið til hernaðar á skipaleiðum banda-
manna eða árása á bækistöðvar þeirra hér á
landi. Jón Magnússon hafði eftir Jack Lewis,
sem lengi var yfirmaður stöðvarinnar, að áætlað
heíði verið að ratsjáin sparaði eitt beitiskip við
eftirlit undan Vestfjörðum. Gátu þá eftirlits-
skipin athafnað sig dýpra og verið færri.
Eftir að Bandaríkjamenn komu til landsins
tóku þeir við vörnum í lofti og á landi, en
Bretar önnuðust áfram stjórn skipaleiðanna og
varnir á sjó. Er hlutverk breska flotans kom
til tals, þ. e. eftirlit með ströndum landsins,
þar með talið ratsjáreftirlitið á Sæbóli, gerði
44
SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR