Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1998, Síða 45
Svæöi þaðsem ratsjárstöö breska flotans á brún Grænuhlíðar náði til og staðsetning Regensburg og bresku her-
skipanna 30. mars 1943.
breska flotastjórnin skýlausa kröfu um að hún
yrði áfram undir breskri stjórn, enda hlutverk
hennar að styðja aðgerðir breslta flotans. Gekk
þetta eftir ólíkt því er gerðist með loftvarnarat-
sjár breska flughersins sem Bandaríkjamenn
tóku við ásamt öðrum þáttum loftvarnanna.
Eitt dæmi er þó um aðgerð gegn þýsku skipi
er ratsjárstöðin á Darra átti þátt í haustið
1943. Eftir hernám Frakklands var þýskum
kaupskipum er freistuðu þess að brjóta hafn-
bann bandamanna öllum beint til hafna við
Biskajaflóa. Var árangur þessara siglinga að
mestu leyti háður aðstæðum og heppni hverju
sinni. Er kom fram á árið 1943 haíði flotum
bandamanna tekist að ná yftrhöndinni í orr-
ustunni á Atlantshafi og fóru að beita sér af
krafti gegn umræddum siglingum, enda mik-
ið í húfi ef þannig mætd á tiltölulega einfald-
an hátt draga verulega úr framleiðslugetu
þýska hergagnaiðnaðarins. Með skipulögðum
aðgerðum, sem meðal annars byggðust á lestri
dulmálsskeyta þýska flotans, voru mörg þess-
ara skipa stöðvuð suður í höfum.
I mars 1943 var svo komið að Þjóðverjar
freistuðu þess að brjóta kaupskipum sínum leið
til hafnar með aðstoð herskipa, kafbáta og flug-
véla. Mikill viðbúnaður var hafður í þessu
skyni og fór ekki fram hjá breska flotanum
sem á sama hátt bjóst
sterklega til varnar.
Þremur þessara skipa var
stefnt á Grænlandssund
leið sem kaupskip höfðu
ekki reynt að fara síðan
vorið 1940. Einungis
kaupskipið Regensburg
náði þó svo langt.
Mótorskipið Regens-
burg var smíðað í Stettin
árið 1927 og tekið í notk-
un árið 1928. Það var
lengt um 10 metra og
skipt um vélar þess árið
1938 og var í eigu þýska
skipafélagsins Nordd-
eutscher Lloyd sem hafði
það í siglingum til Ástral-
íu og Asíulanda. Skipið
var í Asíu er styrjöldin
braust út og hélt til
Yokohama þar sem það
lestaði birgðir fýrir þýsk hjálparbeitiskip eða
víkingaskip eins og þau voru kölluð og störf-
uðu á Kyrrahafi. Starfaði áhöfn skipsins við
slíka birgðaflutninga til vors og hélt áleiðis til
Þýskalands með farm í byrjun maí. Kom
skipið til Bordeaux í Frakklandi í lok júní.
Skipið lagði upp í aðra ferð sína til Austurlanda
í febrúar 1942 og var á leið heim aftur í nóv-
ember er það varð fýrir tundurskeyti banda-
rísks kafbáts í Súndasundi í Indónesíu og varð
að snúa til Singapúrs til viðgerðar. Regensburg
lagði aftur upp með farm sinn til heimferðar 6.
febrúar 1943.
Njósn hafði borist af ferðum skipsins og
biðu beitiskipin H.M.S. Belfast og H.M.S.
Glasgow átekta út af Vestfjörðum ásamt
Ms. Regensburg var 8.000 brúttórúmlestir að stærð og hét áðurTrave. Skipið var í vöru- og
farþegaflutningum milli Evrópu, Austur-Asíu og Ástralíu fyrir stríð en var gert að birgðaskipi fyrir
þýsk víkingaskip og sigldi síðar með vörur í trássi við hafnbann Breta.
Útbúum
lyfjakistur
fyrir skip og báta.
Eigum ávallt tilbúin
lyfjaskrín fyrirvinnustaði,
bifreiðir og heimili.
INGÓLFS
APÓTEK
sími 568 9970
Beinar línur fyrir lækna 568 9935
SjÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR
45