Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1998, Side 73
Prófun
Prófun ehf. var stofnað í
Reykjavík vorið 1985. Stofnendur
voru Jóhannes Sævar Jóhannes-
son og Hrólfur Jónsson ásamt
fjölskyldum sínum, en árið 1986
eignaðist fjölskylda Jóhannesar
Sævar fyrirtækið alfarið og hefur
rekið það síðan. Reksturinn var í
upphafi fundinn staður að Fiski-
slóð 119 en fluttist árið 1993 að
Ægisgötu 4. Prófun var stofnað í
kjölfar þess að reglugerð um
skoðunarskyldu á reykköfunar-
búnaði var sett. Vinnueftirlit ríkis-
ins, Brunamálastofnun ríkisins og
Siglingastofnun hafa ákveðna
eftirlitsskyldu með slíkum þjón-
ustuaðila, sérstaklega varðandi
varahlutalager og verklag og hef-
ur Prófun þeirra viðurkenningu til
eftilits og þjónustu á þessum
búnaði. í upphafi var stefnt að því
að þjónusta reykköfunartæki auk
þess að þolprófa þrýstihylki fyrir
öndunarloft. Til þolprófunar á
þrýstihylkjum þarf að beita var-
færni því það er mikill þrýstingur
sem til þarf. Til þess er notuð svo
kölluð vatnskápuaðferð sem er
sú öryggasta sem þekkist, ekki
síst fyrir þann sem vinnur verkið.
Vatnskápuaðferðin dregur nafn
sitt af því að hylkið er vatnsfyllt
og sett í sérstakan hlífðarkút sem
einnig er vatnsfylltur. Árið 1987
óskaði einn stærsti framleiðandi
reykköfunartækja, Interspiro
(áður AGA), eftir því að Prófun
tæki að sér umboð og þjónustu
fyrir reykköfunartæki sín,
SPIROMATIC. í kjölfar þess hóf
Prófun einnig sölu og þjónustu á
köfunarbúnaði og öðrum því
tengdu. Eins og gefur að skilja
þarf að gæta ýtrustu nákvæmni
við viðhald og eftirlit á öndunar-
búnaði og því hafa starfsmenn
Prófunar sótt námskeið erlendis
hjá framleiðendum tækjanna og
víðar.
Árið 1990 var farið að huga að
tölvustýrðum búnaði til að nota
við endurhleðslu á uppbiástur-
hylkjum fyrir gúmmíbjörgunar-
báta. Það tók langan tíma að
finna lausnina, sérstaklega sök-
um þess hversu ólík efnin eru
sem á hylkin fara. En lokum tókst
þetta með hjálp ungs nýútskrif-
aðs verkfræðings. Þetta mun,
eftir því sem best er vitað vera
eini tölvustýrði hleðslubúnaðurinn
sem til er fyrir þessi efni. Hleðslu-
búnaðurinn var síðan tekinn út og
samþykktur af Siglingastofnun.
Nýverið hefur Prófun öðlast rétt-
indi flugmálayfirvöldum til að hafa
eftirlit með ýmiskonar þrýstihylkj-
um fyrir flugvélar. Þessi viður-
kenning hefur tryggt starfssamn-
ing m.a við Flugleiðir HF. o.fl. Til
að uppfylla þær kröfur, sem
gerðar eru í fluginu varðandi eftir-
lit á búnaði, þurfti að taka ferlið til
gagngerðrar skoðunnar því þær
kröfur sem gerðar í þessum geira
eru mun nákvæmari en það
þekkist á reglgerðum Siglinga-
stofnunar. Lítilla breytinga var þó
þörf og var það viss viðurkenn-
ing.
Eftir að við hófum að þjónusta
flugið höfum við tekið eftir því
hversu mikill munur er á hvernig
eftiliti er háttað meö þjónustuaðil-
um, hvort haldur er unnið fyrir
flug, slökkvilið eða útgerðir. Það
er nokkuð undarlegt því ávallt er
þetta öryggisbúnaður sem um
ræðir.
Allt frá stofnun Prófunar hefur
aðalsmerki þess og slagorð verið
ÖRYGGI, EFTIRLIT, ÞJÓNUSTA.
Með þetta í fyrirrúmi hjá starfs-
mönnum hefur fyrirtækið haslað
sér völl og virðingar sem þjón-
ustufyrirtæki við öryggisbúnað
sem krefst mikillar vandvirkni. ■
~ T,
i/tóllinn
Yandaður
og þægilegur
skipstjórastóll
Verðlækkun!
Vegna betri samninga við
framleiðendur, getum við
nú boðið þessa vönduðu
stóla á lægra verði
BX 500
Fjölbreytt og góð
þjónusta við útgerðarmenn!
I Tökum aö okkur viðgerðir á skipum.
I Dráttarbraut 450 þungatonn.
I Tökum skip í hús til viðgerða,
allt að 27 metra löng.
✓Plötusmíði ✓Skelvinnslutæki
✓Rennismíði ✓Trésmíði
✓Vélaviðgerðir ✓Raflagnir
✓Sandblástur ✓Málningarvinna
I ✓ígulkeraplógar ✓Tækniþjónusta
I ✓Gúmmíbátaþj. ✓Byggingavöruv.
FR YS TIPÖNNUR
!• A
'—► SKIPAVÍK HF.
Nesvegi 20 ■ 340 Stykkishólmur
Pósthólf 105 • Sími 438 1400 • Fax 438 1402
Sjómannablaðið Víkingur
73