Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2000, Síða 16
Samningar sjómanna og útvegsmanna
Sjómaður að störfum.
Ekki er vitað hvenær og hvort takist að semja í launadeilu sjómanna og útgvegsmanna.
Sjómannablaðið Víkingur leitaði til þeirra
sem standa fremst í samningaviðræðum
sjómanna og útvegsmanna, þeirra Grétars
Mar Jónssonar, forseta Farmanna- og
fiksimannsambands íslands, Sævar Gunn-
arssonar, formanns Sjómannsasambands
ísiands, Helga Laxdai, formanns Vélstjóra-
félags íslands og Friðriks J. Arngrímsson-
ar, framkvæmdastjóra Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna, og spurði þá hvern-
ig þeir meti möguleika á að Ijúka þessum
samningum án þess að lög verði sett á
deiluaðila.
VlTUM HVAR VIÐ HÖFUM HVERN ANNAN
„Ég veit ekki hvort okkur tekst að ná
samningum, en ég vona að svo verði,“
sagði Grétar Mar Jónsson, forseti Far-
Grétar Mar Jónsson
forseti Farmanna- og fiskimanna-
sambanbs íslands.
manna- og fiskimannasambands fslands,
þegar hann var spurður hvernig hann meti
möguleikana á að útvegsmönnum og sjó-
mönnum takist að semja í þeirri samninga-
lotu sem nú er hafin.
Er ekki orðið nokkuð áríðandi að þessir
deilendur nái að Ijúka samningum án þess
að til lagasetninga komi?
„Það hefur nánast verið óþolandi eins
og þetta hefur verið og við verðum að ná
að breyta til.“
I þeim samningaviðræðum, sem nú
standa yfir, er þá byrjað að ræða þau mál
sem strandað hefur á í síðustu samning-
um?
„Við höfum gert það sem við höfum get-
að til að ræða öll mál, og þar á meðal
verðlagsmál. En það má ekki gleymast að
flest annað hefur setið eftir í síðustu samn-
ingum. Ég held að það sé Ijóst hvað viljum
gera. Við vitum hvar við höfum hvor annan
í þessum málum. En vissulega eigum við
eftir að takast meira á. Við höfum sett út-
gerðarmenn i okkar kröfur og þeir okkur í
sínar kröfur. í þeirra kröfum er ýmislegt
sem er hægt að skoða.“
Skil ég þig þannig að of snemmt sé að
spá fyrir um lok viðræðna og hvaða árangri
þær skila, en um leið að það er knýjandi
þörf á að Ijúka þessu með samningum að
þessu sinni?
„Já, það er alveg rétt.“
Erum rétt byrjaðir
„Það er enginn leið að segja til um það á
þessari stundu, við erum rétt byrjaðir. Það
er búið að leggja fram kröfur og þetta hafa
verið ánægjulegar viðræður en það er ekki
komin niðurstaða í neitt," sagði Helgi Lax-
dal.
Þú segir að viðræðurnar hafi verið þægi-
legar, er það kannski breyting frá því sem
áður var?
„Ég vil ekkert vera að meta það. Það er
allt í lagi að sitja og spjalla án þess að al-
varan sé með. Það er ekki farið að tala um
það sem mestu skiptir."
16
Sjómannablaðið Víkingur