Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2000, Síða 54
Fyrirtækið NORTEK sérhæfir sig í sölu og þjónustu öryggiskerfa
Búnaður sem hægt er
að treysta
Björgvin Tómasson
framkvæmdastjóri NORTEK.
Fyrirtækið NORTEK sérhæfir sig á sviði
öryggiskerfa til sjós og lands. Má þar
nefna brunaviðvörunarkerfi, slökkvikerfi,
myndavélakerfi, varaaflgjafa, innbrotavið-
vörunarkerfi, aðgangsstýrikerfi og
neyðarljós.
NORTEK selur kerfin, hannar þau og
setur upp, þjónustar þau og gerir árlegar
skoðanir á þeim. NORTEK ehf var stofnað
árið 1996 og er með aðsetur bæði í
Reykjavík og á Akureyri. Björgvin Tómas-
son rafmagnstæknifræðingur og fram-
kvæmdastjóri NORTEK starfaði hjá ABB í
Noregi um árabil og þar kynntist hann
öryggiskerfum sem þar eru framleidd og
þykja einhver þau bestu sem fáanleg eru.
Nokkur af þeim veiðiskipum sem nú eru í
smíðum erlendis verða búin öryggisker-
fum frá NORTEK. Meðal fyrirtækja í landi
sem eru með öryggiskerfi frá fyrirtækinu
má nefna Kaupþing, Bifreiðar- og landbú-
naðarvélar, Vísa ísland og svo sjálft
Alþingi. Við ræddum við Björgvin
Tómasson um starfsemi NORTEK og fyrst
var hann spurður u brunavarnarkerfið sem
fyrirtækið selur.
„Þegar útgerðarmenn láta smíða fyrir
sig skip velja þeir búnaðinn í brúna en
skipta sér lítið af hlutum eins og bruna-
viðvörunarkerfum. Því er algengt að
svokallað rásakerfi sé sett upp í skipum.
Það virkar þannig að ef einn skynjari bilar
þá þarf að einangra alla rásina. Þetta þýðir
að ef rásin er til dæmis í vélarrúmi þá er
vélarúmið einangrað og engin viðvörunar-
búnaður þar virkur þar til skipið kemur til
lands og viðgerð fer fram. Það mega vera
upp í 20 skynjarar á hveri rás og í þessum
stærri togurum okkar geta verið um 70
skynjarar í skipinu og skipinu skipt upp í
ca. átta slaufur."
-Að hvaða leyti er sá brunaviðvörunar-
búnaður sem þið bjóðið uppá frábrugðinn
þessu kerfi?
„Við bjóðum svona kerfi en við mælum
frekar með hliðrænum kerfum (adressuk-
erfi). Þar er hver skynjari með eigið heimil-
isfang, ef svo má að orði komast. Þar er
hægt að einangra hvern skynjara en öll
slaufan er í áfram í lagi og virk. Sá bún-
aður sem við bjóðum er frá Eltek í Noregi
og finnst hann í nokkrum íslenskum
skipum. Verðmunurinn er ekki tiltakanlega
mikill á þessum búnaði og það sem munar
sparast hiklaust með minni viðhaldskost-
naði, auknu öryggi og minnkun á óþarfa
brunaboðum. Ég er ekki að halda því fram
að sá viðvörunarbúnaður sem nú er um
borð í mörgum skipum sé lélegur. Engu að
síður er sá hængur á að í versta tilfelli
getur verið að enginn skynjari á íbúða-
gangi eða í vélarúmi sé virkur vegna þess
að einn er bilaður. Kerfið sem Nortek mæl-
ir með frá Eltek gefur því mun meira
öryggi, er aðeins dýrara í innkaupum, en á
móti kemur að það er mun ódýrara í
rekstri."
-Þú sagðir að hver skynjari frá ykkur
væri með eigið heimilisfang.
Lýstu því aðeins nánar hvað það þýðir?
„Á skjá í stjórnstöð kemur fram nákvæm
staðsetning hvers skynjara um borð. Við
skulum segja sem svo að skynjari í brú sé
númer 201 og ef það númer kemur á
skjáinn ásamt texta er strax vitað hvar
skynjarinn er sem gefur brunaboð. Sama
má segja um skynjara í káetum eða hvar
sem er. Þetta er mikið öryggisatriði og
sparar dýrmætan tíma. Búnaðurinn frá
Eltek er viðurkenndur af virtum flokkunar-
félögum svo sem Det Norske Veritas og
Lloyds. Við erum nýbúnir að hanna svona
kerfi í eitt af nýju skipunum sem er í smíð-
um fyrir íslenskt útgerðarfélag. Þar eru
tvær stjórnstöðvar í kerfinu, önnur í brú og
hin í vélarrúmi. Þær „tala“ hundrað
prósent saman og þú færð allar upplýsin-
gar á báðum stöðunum og getur gert allar
aðgerðir hvort heldur er uppi í brú eða
niðri í vélarými. [ hliðrænu kerfunum getum
við stillt næmi hvers og eins skynjara til að
aðlaga hann umhverfinu og koma þannig í
veg fyrir að þeir fari í gang að óþörfu eins
og oft vill brenna við í rása kerfum. Þá fara
menn að slökkva á skynjararásum sem er
mjög alvarlegt mál eins og áður hefur
komið fram. Ég er sannfærður um að ef
útgerðarmenn taka viðvörunarbúnað
okkar strax inn í útboðslýsingu fyrir nýs-
míði eða breytingar sem send er skipas-
míðastöðvum þá gætir þess í engu í heil-
darverði."
Slökkvikerfi
í framhaldi af þessu liggur beint við að
ræða lítið eitt um slökkvikerfi. NORTEK
býður fram stór og lítil slökkvikerfi af
ýmsum gerðum, til dæmis C02, vatns-
þoku, Argotec og Halotron IIB. Björgvin
Tómasson segir að kerfin sem NORTEK
selur komi frá þekktum framleiðendum,
svo sem Heien Larssen.
„Það eru mörg skip í íslenska flotanum
með C02 og Hallon kerfi frá Heien Lars-
sen, en því miður verða Hallon slökkvi-
54
SjÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR