Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2002, Síða 56
Siglingastofnun mun gera drög að
bæklingi fyrir farþega um öryggi farþega-
skipa sem útgerðir skipanna gætu nýtt
sér við gerð eigin bæklings.
Verkefni:
3.2 Átak til að nýliðafræðslu sé betur
sinnt.
3.10 Frágangur og umgengni á neyðar-
búnaði skipa.
3.11 Mikilvægi skipulagðra æfinga og
þjálfunar í skipum
Markmið:
Að fækka slysum sem tengjast þekk-
ingarleysi starfsmanna sem eru að hefja
störf eða sinna nýju starfi um borð í
skipi.
Að tryggja gott ástand neyðarbúnaðar
og að rétt sé brugðist við ef neyðarástand
verður í skipi.
Staða mála:
Nýliðafræðsla er lögbundin samkvæmt
8. gr. sjómannalaga nr. 35/1985, en sam-
kvæmt heimildum er brotalöm á að þetta
ákvæði sé virt í íslenskum skipum. Sam-
bærilegt er um björgunar- og eld-
varnaræfingar, þ.e.a.s. til eru reglur en al-
mennt ekki farið eftir þeim. Frágangur
og umgengni um neyðarbúnað skipa eru
stundum gagnrýnd, stuðla þarf að því að
rétt sé gengið frá búnaðinum í skipum.
Pað er fullyrt að góð starfsþjálfun og
nýliðafræðsla sé ein árangursríkasta leið-
in til að fækka vinnuslysum til sjós og
æfingar eru grundvöllur þess að rétt sé
brugðist við raunverulegum neyðarað-
stæðum og því mikilvægt að taka á þess-
um málum.
Ábyrgð og umsjón með
framkvæmd:
Slysavarnaskóla sjómanna verði falið
að gera kynningarefni og halda uppi á-
róðri.
Siglingastofnun skipuleggi aðgerðir
varðandi fyrirkomulag eftirlits
Samstarfsaðilar:
LÍU, SÍK, LHG og Ss.
Áætluð fjármögnun:
Langtímaáætlun ráðstafi fé til að gera
kynningarefni og til áróðurs/augl.,
0,5 millj. árið 2001.
0,5 millj. árið 2002.
0,5 millj. árið 2003.
Framkvæmd:
Gert verði sérstakt kynningarefni og á-
taki komið af stað til þess að:
- nýliðafræðslu sé sinnt betur,
- neyðarbúnaður sé rétt settur upp í
skipum,
- umgengni um neyðarbúnað skipa sé
ávallt góð,
- æfingar og þjálfun í skipum séu
skipulagðar og haldnar samkvæmt
kröfum.
Átakið feli í sér áróður sem beint verði
til skipstjórnarmanna og áhafna. Jafn-
framt verði eftirlit Siglingastofnunar og
Landhelgisgæslu aukið með þessum þátt-
um öryggismálanna.
Tímasetningar:
Átaksverkefni fari fram á árunum
2001, 2002 og 2003.
Framvinda verkefnis:
Mars 2002:
Unnið er að gerð fræðslubæklinga um
ýmsa þætti öryggismála, sem dreift verð-
ur til útgerða og sjómanna.
Unnið er að því að auka eftirlit Sigl-
ingastofnunar og Landhelgisgæslu með
þessum þáttum öryggismála, sbr . verk-
efni 13.2. og 13.5.
Verkefni:
3.3 Leiðbeiningar fyrir öryggisfull-
trúa.
12. Sluðla þarf að því að öryggistrún-
aðarmannakerfi verði tekið upp til
reynslu í fiskiskipum.
13.4 Öryggisfulltrúar útgerða og áhafna
séu skipaðir.
Markmið:
Að útgerðarmenn og áhöfn beri sam-
eiginlega ábyrgð á því að fyrirkomulag
öryggismála í skipum sé í góðu horfi. Að
áhafnir skipa axli ábyrgð gagnvart öryggi
og heilsu og verði virkari í mótun örygg-
ismála og vinnuumhverfis í eigin skip-
um.
Staða mála:
í fyrirtækjum á landi hefur það tíðkast
um langt skeið að sérstakir öryggisfull-
trúar séu skipaðir og hafa þeir samstarf
við Vinnueftirlitið sem gerir fræðsluefni
og heldur námskeið fyrir þá. Slíkt fyrir-
komulag hefur ekki tíðkast í skiputn, en
vert væri að stuðla að því. í reglugerð
nr. 786/1998, um ráðstafanir er stuðla að
bættu öryggi og heilsu starfsmanna í
skipum, er meðal annars ákvæði um til-
nefningu öryggis- og heilbrigðisfulltrúa.
Gera þarf átak til að kynna reglugerðina
og fylgja þarf eftir að unnið sé eftir kröf-
um hennar.
Ábyrgð og umsjón með
framkvæmd:
Siglingastofnun íslands
Samstarfsaðilar:
Útgerðir, LÍÚ, SÍK, SÍ, Ss, Vinnueftirlit
og samtök sjómanna
Áætluð fjármögnun:
Langt.áætlun styrki gerð fræðsluefnis
56 - Sjómannablaðið Víkingur