Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2000, Side 29

Náttúrufræðingurinn - 2000, Side 29
7. mynd. Teikning af því hvernig Smilodon liefur hugsanlega notað neðri kjálkann sem ankeri til að veita bráðinni náðarstunguna. Með þessu móti gat sverðkötturinn notað hina stóru vöðva aftan á höfuðkúpunni til að þrýsta vígtönnunum inn í bráðina og flá úr henni stórt stykki, áður en hún nœði að bregðast við (Akersten, 1985). - A model of how Smilodon might possibly have used its lower jaw as an ankerfor biting its prey. This way it could use its huge muscles attached to the back of its head to thrust its teetli into the prey, ripping a large chunk offleshfrom it (from Akersten, 1985). dýr sem hlaupa tiltölu- lega hratt yfir miklar vegalengdir. Blettatígur- inn lendir einnig þessum flokki, en hann hleypur á miklum hraða yfir stuttar vegalengdir og notar framfætuma til að fella bráðina. 2. Rándýr sem liggja í launsátri (am- bush). I þennan flokk falla dýr allt frá meðal- stórum hlébörðum til stórra ljóna og tígris- dýra. Þessi rándýr læð- ast að bráðinni, vel falin í gróðrinum, og ná henni síðan eftir stuttan sprett. Rándýrið heldur bráðinni fastri nteð klóm framfóta meðan það drepur hana, oftast með bili í hálsinn. 3. Rándýr sem fara hægt yfir, tölta (arnbula- tory). I þessum flokki lenda þau rándýr sem yfirleitt ganga eða hlaupa rólega, t.d. flestir núlifandi bimir. Beinagerð þessara rán- dýra hefur verið rann- sökuð og borin saman við beinagerð útdauðra kattardýra með það að markmiði að reyna að sjá hverjum áðurnefndra flokka þau tilheyra. Með þessari aðferð er einnig mögulegt að ákvarða líklega líkamsþyngd dýranna. I eftirfarandi töflu eru þrjártegund- ir bornar saman (1. tafla). Það sem kom mest á óvart var að líkams- þyngd Smilodon var metin 50% meiri en áður hafði verið talið, eða um og yfir 400 kg. Það er ótrúleg þyngd á kattardýri sem var örlítið styttra og lægra en venjulegt ljón, en það vegur um 200 kg. Homotherium og Machairodus voru enn minni en Smilodon en vógu samt álíka mikið og ljón. Næsta spurning er: Hvað átu þessar skepnur? Athugun á beinum úr hellum, sem talið er að þau hafi dvalið í, leiddi í ljós að langflest þeima voru úr ungum mammútum. Auk þeirra voru þar bein úr öðrum þykk- 7. tafla. Þyngd og veiðiaðferð þriggja tegunda sverðkatta. - Weiglits of tliree saber- toothed cat species and their ways of hunting. Tegund/Species Þyngd/Weight Veiðiaðferð/ Way of himling Smilodon fatalis Homotherium serum Machairodus coloradensis 360-420 kg 145-230 kg 130-225 kg Launsátur/tölt/am/>H,s/í, ambulatory Launsátur/hlaup/amhwi/j, cursorial Hhmp/cursorial 91

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.