Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2000, Síða 63

Náttúrufræðingurinn - 2000, Síða 63
Fléttuflóra Norðurlanda 1. bindi Nordic Lichen Flora, Vol. 1, Calicioid li- chens and fungi (Fléttuflóra Norðurlanda, 1. bindi). Ritstjórar: Teuvo Ahti, Per Magnus Jdrgensen, Hörður Kristinsson, Roland Moberg, Ulrik Söchting og Göran Thor. Norræna fléttufræðifélagið 1999, 94 blaðsíður. Fléttur eru sambýli svepps og græn- eða bláþörungs. Sveppurinn skýlir þörungnum og ver hann uppþornun og of sterkri sólargeislun en fær að launum stærstan hluta kolvetnisframleiðslu þörungsins. Þetta er oft nefnt sem dæmi um samhjálp þar sem báðar lífverurnar hafa hag af sambýlinu, NORDIC LICHEN FLORA Nolnmr I Intrmluctorv pariv < alichiid Ikhrnt and fungi 1999 en á síðari árum hafa margir frekar viljað lýsa sambandinu sem „þrælahaldi", þar sem sveppurinn nær tangarhaldi á viðkomandi þörungi sem hann nýtir sér til vaxtar og viðhalds. Hvað sem skilgreiningu á sambandi lléttuhlutanna líður er það víst að án sambýlisins ætti þörungurinn erfitl með að þrífast á mörgum þeim stöðum þar sem fléttur eru algengar. Fléttur eiga erfitt uppdráttar í beinni samkeppni við plöntur og mosa, en þær eru þeim mun þrautseigari við erfið skilyrði. Því er ekki að undra þótt fléttur séu algengar á íslandi og varla finnst sá steinn sem ekki hefur nokkrar tegundir Iléttna í ábúð. Á stærri hnullungum má jal'nvel finna tugi ólíkra tegunda. Einnig vaxa fléttur á trjám, á dauðum viði, á rnosa og á jarðvegi, bæði sem frumherjar á ógrónu landi og á grónu landi. Fléttuflóra íslands telur um 660 tegundir og stór hluti þeirra eru svonefndar hrúðurfléttur en þal þeirra myndar hrúður eða skán og vaxa þær oft á klöppum og steinum. Sá fróðleikur sem aðgengilegur er íslenskum almenningi um fléttur er hins vegar allur um blað- og runnfléttur, en þrátt fyrir að lléttur hafi frá fornu fari verið flokkaðar eftir ytra útliti þá gefur það í mörgum tilfellum litla vísbendingu um skyldleika tegundanna. Hörður Kristinsson hefur ritað nokkrar greinar á íslensku um íslenskar blað- og runnfléttur. Nýverið birtist í Náttúrufræðingnum grein eftir hann um króka og kræður. Hann hefur einnig skrifað greiningarlykil yfir íslenskar blað- og runnfléttur sem hefur dreifst allnokkuð sem ljósrit. Svipaða sögu er að segja um ástandið annars staðar á Norðurlöndum. Blað- og runnfléttur eru allvel þekktar og eru til ágætis flórur yfir þær bæði frá Noregi (Lavflora eftir Krog, 0sthagen og Tpnsberg) og Svíþjóð (Lavar eftir Moberg og Holmásen), en hrúðurflétturnar eru minna þekktar þótt vissulega sé til flóra yfir sænskar hrúðuriléttur (Svensk skorplavs- flora eftir Foucard). Saga flétturannsókna er gömul á Norðurlöndum og rekur upphaf sitt til Carls von Linné (1707—1778) en faðir fléttu- fræðinnar, Erik Acharius (1757-1819), var einn lærisveina hans og skrifaði mikið um skandinavískar fléttur. Hins vegar hefur verið lítið um samræmdar aðgerðir til að gefa út Iléttuflóru sem næði til allra tegunda. Th. M. Fries (1832-1913), sem skrifaði Lichenographia scandinavica á áttunda 125

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.