Náttúrufræðingurinn - 1998, Side 5
Endurheimt
VOTLENDIS HAFIN
Á ISLANDl’
BORGÞÓR MAGNÚSSON
síðari hluta þessarar aldar hefur
votlendi tekið miklum breytingum
hér á landi vegna framræslu og
ræktunar mýra. A láglendi hafa
mýrar víðast hvar verið ræstar fram og lítið
er þar eftir af ósnortnu landi (Þóra Ellen Þór-
hallsdóttir o.fl. 1998, Hlynur Óskarsson
1998a,b). Framræslan hefur haft mikil áhrif á
votlendi, jarðvatnsstaða hefur lækkað og
gróðurfar breyst í mýrum (Borgþór Magnús-
son og Sturla Friðriksson 1989, Borgþór
Magnússon 1998), tjarnir og smávötn hafa
sumstaðar þornað eða litast mýrarauða og
framburði úr skurðum og breytingar hafa
orðið á rennsli í ám og lækjum. Búsvæði
votlendisplantna og dýra hafa því orðið
fyrir mikilli röskun og dæmi eru um að
tegundir hafi beðið hnekki.
Framræsla mýra hefur komið íslenskum
landbúnaði til góða. Óhugsandi væri að
stunda nútímabúskap í mýrlendum sveitum
án þess að nýta framræstar mýrar í ríkum
mæli. Margir telja hins vegar að of langt hafi
verið gengið við þurrkun mýra og að landi
hafi víða verið spillt að óþörfu með fram-
ræslu. Með samdrætti í landbúnaði á undan-
förnum tveimur áratugum hefur hefðbundin
nýting mýra, jafnt sem annars lands, til
túnræktar og beitar fyrir búpening sum-
Borgþór Magnússon (f. 1952) lauk B.Sc.-prófi í
líffræði frá Háskóla fslands 1976, M.Sc.-prófi í
vistfræði frá háskólanum í Aberdeen í Skotlandi
1979 og doktorsprófi í plöntuvistfræði frá
grasafræðideild Manitoba-háskóla í Winnipeg,
Kanada 1986. Frá þeim tfma hefur hann starfað á
Rannsóknastofnun landbúnaðarins.
staðar lagst af. Við þetta hefur skapast svig-
rúm til að huga að annarri landnýtingu á
þessum svæðum og hefur meðal annars
vaknað áhugi á að reyna að endurheimta
eitthvað af því mýrlendi sem ræst var fram. í
nágrannalöndunum hefur það sama verið
uppi á teningnum og hefur þar víða fengist
talsverð reynsla af aðferðum sem beita má
við endurheimt votlendis (Marble 1992,
Wheeler og Shaw 1995, Þóra Ellen Þórhalls-
dóttir 1998).
Haustið 1996 var gerð tilraun til endur-
heimtar votlendis hér á landi er framræslu-
skurðum í mýri á jörðinni Hesti í Borgarfirði
varlokað. Sumarið 1997 var endurheimt vot-
lendis einnig hafin á a.m.k. þremur öðrum
stöðum á landinu. í greininni verður skýrt
frá endurheimt mýra á Hesti og við Kolavatn
í Holtum í Rangárþingi og aðdraganda þeirra
aðgerða. Einnig verður vikið að aðstæðum
til endurheimtar hér á landi og aðferðum sem
beita má við hana.
■ NEFND UM ENDURHEIMT
VOTLENDIS
Fuglaverndarfélag Islands hefur átt
frumkvæði að þeirri endurheimt votlendis
sem hafin er hér á landi, en félagið hefur
lengi barist fyrir friðun og verndun vot-
lendis. Árið 1995 beindi félagið því erindi til
ráðuneyta landbúnaðar og umhverfis að
1 Efni greinarinnar var upphaflega kynnt á
Ráðunautafundi í febrúar 1998.
Náttúrufræðingurinn 68 (1), bls. 3-16, 1998.
3