Náttúrufræðingurinn - 1998, Blaðsíða 7
2. mynd. Endurheimt hafin og ruðningi ýtt ofan í skurð í Hestmýri, 10. október 1996. -
Restoration started in the mire at Hestur by filling of the ditches. MyndJphoto: Ásrún
Elmarsdóttir.
Lundarreykjadals (1. mynd). Svæðið er í
landi Mávahlíðar en hún hefur verið lögð
undir sauðfjárbú Rannsóknastofnunar land-
búnaðarins á Hesti. Svæðið var valið til
langtímarannsókna á áhrifum frainræslu á
vistkerfi mýra og hóf stofnunin rannsóknir á
mýrinni árið 1975. Fráþeim tíma hefur heitið
Hestmýri verið notað um svæðið. Gerðar
voru umfangsmiklar forrannsóknir á mýrinni
áður en að framræslu kom og var þeim fylgt
eftir fyrstu árin eftir hana. Rannsóknirnar
tóku til jarðvegs, gróðurs, fugla, smádýralífs
og búfjárbeitar á svæðinu. Niðurstöður
þeirra hafa m.a. birst í nokkrum fjölritum
stofnunarinnar (Rannsóknastofnun land-
búnaðarins 1975, Sturla Friðriksson, Árni
Bragason og Guðmundur Halldórsson 1977,
1978, Sturla Friðriksson 1980).
Mýrin á Hesti var ræst fram með vél-
gröfnum skurðum haustið 1977 en einnig
var kílræst á hluta svæðisins og hagaskurðir
plægðir á öðrum. Haustið 1984 var aukið við
vélgröfnu skurðina til að bæta framræsluna.
Ríkjandi tegund í mýrinni fyrir framræsluna
var mýrastör en aðrar helstu tegundir
vetrarkvíðastör, klófífa, tjarnastör, hor-
blaðka, brjóstagras, kornsúra, fjalldrapi og
bláberjalyng (Sturla Friðriksson 1980).
Mælingar sem gerðar voru í mýrinni sjö
árum eftir fyrstu framræsluna bentu til að
gróðurbreytingar hafi verið fremur hægar.
Þannig hafði þekja mýrastarar lítið breyst
þar sem gróður var rannsakaður en verulega
hafði dregið úr þekju vetrarkvíðastarar og
tjarnastarar frá því sem var. Aukning í þekju
grasa var þá orðin mjög lítil en hún var helst
merkjanleg hjá blávingli (Tryggvi Gunnars-
son, óbirt gögn, Borgþór Magnússon 1998).
Rannsóknir vegna endurheimtar. (1996
og 1997)
Sumarið 1996 voru hafnar rannsóknir í
Hestmýrinni að nýju eftir liðlega 10 ára hlé.
Miðuðusl þær við að afla upplýsinga um
ástand mýrarinnar áður en skurðir yrðu
fylltir en þær eru nauðsynlegar til að meta
5