Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1998, Page 29

Náttúrufræðingurinn - 1998, Page 29
LEIFUR A. SÍMONARSON OG JÓN EIRÍKSSON Báruskel EÐA GÁRUSKEL? „Skeljarnar skakkhjartlaga, ekki þykkar, allkúptar, gulhvítar eða íbrúnar að lit. Hýði greinilegt, stundum stutthært. Nefið lítið eitt framan við miðju. Bakrendurnar fremur hallalitlar. Kviðröndin óslétt °8 bggur í kröppum boga. Geisla- rifin 30-33, mjög sjaldan fœrri eða fleiri. L. allt að 82 mm. “ Þannig er báruskel lýst í riti Ingimars Oskars- sonar, Samlokur í sjó, en það kom fyrst út árið 1952 í ritröð um skeldýrafánu íslands (1. mynd a). atneskt nafn báruskeljar er nú oftast ritað Clinocardium cilia- tum. Danski presturinn og síðar biskupinn Otto Fabricius gaf henni tegundarheitið árið 1780, en nefndi hana Cardium ciliatum þar sem hann taldi Leifur A. Símonarson (f. 1941) lauk magistersprófi í jarðfræði frá Kaupmannahafnarháskóla 1971 og licentiat-prófi frá sama skóla 1978. Hann er prófess- or í steingervingafræði við Háskóla Islands og hefur einkum fengist við rannsóknir á tertíerflóru Islands og sælindýrafánum frá efri hluta tertíers, ísöld og nútíma á Islandi og Grænlandi. Jón Eiríksson (f. 1944) lauk B.S.-prófi í jarðfræði frá Háskóla íslands 1973 og Ph.D.-prófi í jarðfræði frá University of East Anglia í Norwich, Englandi 1979. Hann starfaði við Orkustofnun 1973-1974 en hefur starfað við Raunvísindastofnun Háskólans frá 1978. Jón hefur stundað rannsóknir á ísaldarsetlögum og sjávarsetlögum. Hann er aðjúnkt við jarð- og land- fræðiskor Háskóla íslands og hefur einkum annast kennslu í setlagafræði og jarðfræðikortagerð. tegundina til ættkvíslarinnar Cardium. Árið 1936 var henni hins vegar skipað í ætt- kvíslina Clinocardium, sem Bandaríkja- maðurinn A.M. Keen nefndi svo. Báruskel er algeng umhverfis ísland á 0- 260 m dýpi, einkum neðan fjörumarka og virðist kjördýpi hennar vera 8-95 m (Guðmundur G. Bárðarson 1920, Madsen 1949). Hún kann best við sig á mjúkum eðjubotni en lifir líka á blönduðum botni (Madsen 1949). Þannig finnst hún oftast í fínkornóttara botnseti í kyrrari sjó en krók- skel (Serripes groenlandicus), sem er náskyld henni, en báðar tegundirnar sía fæðuagnir úr sjó sem þær taka inn í möttulholið (Thorson 1934, Ockelmann 1958). Báruskelin lifir í frekar köldum, fullsöltum sjó umhverfis norðurskauts- svæðið (circumpolar) og eru suðurmörk hennar í Atlantshafi við sunnanvert ísland, Austur-Finnmörk og Cape Cod á austur- strönd Bandaríkjanna, en í Kyrrahafi við Norður-Japan og Puget Sound á vestur- ströndBandaríkjanna(Ockelmann 1958). Ef skoðaðar eru eldri sem yngri orða- bækur um íslenskt mál má sjá að oftast er vísað til hörpudisks (Chlamys islandica) í umfjöllun um báruskel. Þá er litið á þessi nöfn sem samheiti og þau notuð um sömu tegundina. Varla getur það talist greinar- gott. Þar að auki hafa a.m.k. þrjár tegundir verið nefndar báruskeljar. Þær lifa ekki lengur við landið, en voru hér í lok tertíer- tímabils fyrir rúmlega þremur milljónum ára. Tegundir þessar einkenna lífbelti í neðsta Náttúrufræðingurinn 68 (1), bls. 27-36, 1998. 27

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.