Náttúrufræðingurinn - 1998, Blaðsíða 30
1. mynd a: Báruskel (Clinocardium ciliatum). b: Hörpudiskur (Chlamys islandica).
Mœlikvarðinn er 1 cm. - a: The heterodont bivalve Clinocardium ciliatum. b: The dysodont
bivalve Chlamys islandica. Scale is shown by 1 cm bar.
hluta Tjörneslaga og hafa viðkomandi jarð-
lög því verið nefnd báruskeljalög. Ekki
greiðir sú nafngift úr nafnaflækjunni. Því
telja höfundar ástæðu til að endurskíra teg-
undirnar úr Tjörneslögunum og nefna þær
gáruskeljar og jarðlögin gáruskeljalög eftir
þeim. Á skeljunum eru áberandi gárur sem
liggja samsíða rönd skeljanna, en bárur sem
ná frá nefi og niður að kviðrönd sjást vart
nema hjá einstaka tegundum og eru þá mjög
ógreinilegar. I greininni verður fjallað nánar
um þessar nafngiftir og tegundagreiningu
gáruskelja úr Tjörneslögum.
■ ER BÁRUSKELIN
HÖRPUDISKUR?
Nafnið báruskel virðist fyrst hafa verið
notað á íslensku í riti Jóns Guðmundssonar
lærðaum íslands aðskiljanlegar náttúrur, en
það var líklega skrifað á árunum 1640-1644
(Halldór Hermannsson 1924). Jón lærði
sagði einnig frá hörpudiski eða St.
Jakobsskel, eins og hann taldi hann oftast
nefndan hér á landi og raunar í Evrópu, og
síðan hefur oftast verið gerður skýr
greinarmunur á báruskel og hörpudiski (1.
mynd b). Þannig gat Eggert Olafsson um
báðar tegundirnar hér við land í Ferðabók
sinni, sem kom fyrst út árið 1772, og einnig
Færeyingurinn N. Mohr í náttúrusögu
íslands sem gefin var út 1786. Þá sagði
Benedikt Gröndal frá báruskel og
hörpudiskum í riti sínu um dýrafræði, en það
kom út árið 1878. Síðan hefur margoft verið
sagt frá tegundunum hér við land og
báruskel því oft verið nefnd.
Jón Ólafsson frá Grunnavík nefndi bæði
báruskel og hörpudisk í riti sínu um sæ- og
2. mynd. (s. 3). Gáruskeljar úr Tjörneslögum ogfrá steinöld (miðbiki nútíma) í Danmörku.
a: Venerupis aurea, glóskel úr efsta hluta gáruskeljalaga. b: Venerupis aurea, glóskel úr
jarðlögum frá steinöld í Danmörku. c: Venerupis rhomboides, bugskel úr efsta hiuta
gáruskeljalaga. d: Venerupis rhomboides, bugskel úr efri hluta tígulskeljaiaga. e:
Venerupis pullastra, möttulskel úr efsta hluta gáruskeljalaga. f: Venerupis pullastra,
möttulskel úr jarðlögumfrá steinöld íDanmörku. g: Venerupis pullastra, möttulskel úr efri
hluta gáruskeljalaga. Afsteypa af innra borði skeljarinnar; örin vísar á möttulbuginn.
Mœlikvarðinn er I cm.
28