Náttúrufræðingurinn - 1998, Side 32
vatnadýr á íslandi, sem hann lauk við að
taka saman árið 1737. Fylgir hér smákafli úr
riti Jóns:
„Hörpudiskar eru bæði stórir og smáir, allir
Iítið íhvolfir, frambreiðir og sléttir innan við
kaflann, hvar fiskurinn liggur, sem er sagður
mjög sætur, en þar fyrir framan með köflum,
röstum og reinum, eða lögum og rákum á
milli, allt fram að röndinni eða opinu; þó eru
þessir kaflar ei svo brattir, né reinarnar
djúpar, sem utan, þar hvortveggi er hærri og
dýpri, og liggja langt frá naflanum, og fram
að röndinni eða munninum, og stækka því
meira sem fram á sækir; eru kaflamir utan til
misþykkir og rákirnar misdjúpar og víðar, þó
eptir skammti, svo optast eru jafn margir
mjóir kaflar og grynnri rákir á milli. Við nafl-
ann eru tvö flöt hök eða eyru, annað lítið,
annað tvöfalt stærra. Eins eru rákir og kaflar
í hálfhringunum, sem þvers um liggja, en þó
ei svo djúpir, sem hinir langseptir. Liturinn
er hvítur eða rauður optast, innan frá
fiskleginu, fram að röndinni. Hálfhringarnir
utan eru hvítir, en sumar þessar skeljar eru
aldeilis dökkleitar utan. Eystra kallast þær
Báru-skeljar.“
Þorvaldur Thoroddsen birti þennan kafla
úr handriti Jóns í Landfræðissögu Islands
árið 1898 og þaðan tók Sigfús Blöndal þetta
upp í Islensk-danska orðabók sína, sem út
kom í heftum á árunum 1920-1924, en hann
taldi hörpudisk samheiti báruskeljar og
vitnar í áðurnefnt rit Þorvaldar. Hér er
sennilega komin skýring á því að í íslenskri
orðabók handa skólum og alménningi eftir
Árna Böðvarsson, sem út kom árið 1963 og
aftur 1983, er vísað til hörpudisks í umfjöllun
um báruskel í báðum útgáfunum. Sama er að
segja um Islenska samheitaorðabók sem
gefin var út af Háskóla íslands árið 1985 í
ritstjórn Svavars Sigmundssonar.
Nafnið báruskel virðist fremur vinsælt
meðal Islendinga og því er sagan varla hálf-
sögð ennþá. Nú hefur nafnið báruskeljar,
þ.e. fleirtölumyndin, verið notað í nokkur ár,
eða að minnsta kosti frá 1968, um þrjár
samlokutegundir í Tjörneslögum sem ekki
lifa lengur hér við land (2. mynd). I samræmi
við það hefur neðsti hluti Tjörneslaga, frá
Köldukvísl til Rekár á vestanverðu Tjörnesi,
verið nefndur báruskeljalög (Þorleifur
Einarsson 1968). GuðmundurG. Bárðarson
(1925) skipti Tjörneslögum milli Köldu-
kvíslar og Höskuldsvíkur í þrjú lífbelti eftir
steingervingum og nefndi það elsta eftir
ættkvíslinni Tapes, hið næstelsta eftir ætt-
kvíslinni Mactra og það yngsta eftir teg-
undinni Cardium groenlandicum (3. mynd).
Allt frá 1968 hefur elsta lífbeltið verið nefnt
báruskeljalög þegar fjallað hefur verið um
það á íslensku, miðbeltið tígulskeljalög og
það yngsta krókskeljalög. Guðmundur G.
Bárðarson notaði sjálfur aldrei þessi ís-
lensku heiti. í bók hans Ágrip af jarðfræði, 2.
útgáfu, sem kom út árið 1927, stendur hins
vegar um elsta lífbeltið: „Einkennistegund-
imar eru suðrænar skeljategundir, er nefnast
„ Tapes “ (skyldar báruskeljum); lifa enn við
suðvesturstrendur Noregs og við Bret-
land.“ Einhvern veginn hefur þetta síðan
orðið að báruskeljum. Það getur varla talist
sérlega heppilegt að nefna þessar skeljar úr
Tjörneslögunum báruskeljar því þær eru
raunar skyldari freyjuskeljum (Veneridae)
og þar á ofan hefur nafnið verið notað miklu
lengur á allt aðrar tegundir. Þetta hefur oft
valdið ruglingi, enda ekki óeðlilegt að flestir
búist við að finna hina einu sönnu báruskel
í báruskeljalögunum. Það er að minnsta
kosti ljóst að sú tegund sem almennt gengur
undir nafninu báruskel (Clinocardium
ciliatum) og lifir nú hér við land hefur ekki
fundist í þessu neðsta lífbelti Tjörneslaga.
Hún kemur fyrst inn í íslensk skeldýra-
samfélög í yngsta lífbeltinu, þ.e. krókskelja-
lögunum.
■ BÁRUSKEL OG GÁRUSKEL,
BÁRUSKELJALÖG EÐA
GÁRUSKELJALÖG
í riti Ingimars Óskarssonar (1952) um
samlokur í sjó er orðið bára oftast notað um
geislarif, þ.e. fellingu á yfirborði skelja sem
nær frá nefi og út að kviðrönd skeljanna; sjá
t.d. lýsingu hans á bárudiski (Chlamys arata
áðurPecten aratus). Slíkar bárur eru áberandi
bæði hjá hörpudiski (Chlamys islandicá) og
báruskel (Clinocardium ciliatum) og þar er
ef til vill komin skýringin á því að Jón
30