Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1998, Page 38

Náttúrufræðingurinn - 1998, Page 38
found in Icelandic waters anymore. They are dis- tributed from western Norway to the coasts of northern Africa and indicate 5-6° C higher sea temperature in the Tjömes area during the depo- sition than now prevailing in North Iceland. Older identifications of Venerupis (former Tapes) specimens from the Tjörnes deposits are discussed and revised. PÓST- &NETFANG HÖFUNDA/ AuTHORS’ADDRESS &E-MAIL Leifur A. Símonarson Raunvísindastofnun Háskólans /Science Institute Jarðfræðahús Háskólans IS-101 Reykjavík leifuras@raunvis.hi.is Jón Eiríksson Raunvísindastofnun Háskólans /Science Institute Jarðfræðahús Háskólans IS-101 Reykjavík jeir@rhi.hi.is Fpettipl RJÚPUR, RJÚPNAVEIÐIMENN OG RÁNFUGLAR Landeigendur og náttúruverndarsinnar hafa áhyggjur af minnkandi rjúpnastofnum á Bretlandi. Rannsókn, sem Konunglega fuglaverndunarfélagið (Royal Societyfor the Protec- tion of Birds) og Skoska þjóðararfleifðin (Scottish National Heritage) stóðu að á einni landareign á landamærum Skotlands og Englands, benda til þess að minnkandi rjúpnaveiði tengist fjölgun ránfugla. Fylgst var með varpi tveggja tegunda ránfugla á svæðinu í sex ár, 1991 til 1996. Fyrsta árið komust ungar á legg úr tveimur hreiðrum bláheiðis (Circus cyaneus) og þremur hreiðrum förufálka (Falco peregrinus). Síðan vænkaðist hagur fuglanna og árið 1996 voru samsvarandi tölur 15 hreiður bláheiðis og fimm förufálkahreiður. Veiði á dalrjúpu (Lagopus lagopus) snarminnkaði hins vegar: Árið 1991 veiddust 1879 rjúpur en 1996 ekki nema 67. Veiðimönnum þykir þetta að vonum allillt og samtök þeirra (Game Conservancy Trust) hafa lagt til að safnað verði eggjum eða ungum úr hreiðrum bláheiðis á rjúpnaveiðilöndum, ungarnir aldir upp og þeim sleppt annars staðar. Vistfræðingar hafa lilla trú á að þetta takist. Veiðimenn á öðrum rjúpnalöndum myndu ekki fagna þessari samkeppni auk þess sem aðkomufuglarnir ættu sér tæpast lífsvon innan um hagvana heiða sem fyrir væru. Önnur hugmynd er að fóðra ránfuglsungana í hreiðrunum svo þörf þeirra fyrir rjúpnaket minnki. En þetta yrði tímafrekt og erfitt í framkvæmd og auk þess óvíst um árangur. Rjúpnaskyttur telja ólíklegt að stjórnvöld leyfi fækkun ránfugla af mannavöldum en forseti Skosku þjóðararfleifðarinnar, sjónvarpsmaðurinn Magnús Magnússon, hefur lagt til að gullerni (Aquila chrysaétos) verði búin varpaðstaða á rjúpnaveiðilöndum þar sem hann muni halda bláheiði í skefjum. Magnús segir að allar hugsanlegar lausnir á vanda rjúpnaskyttna verði athugaðar á ráðstefnu sem boðað hefur verið til næsta vor. SjáNew Scientist, 8. nóvember 1997. Örnólfur Thorlacius tók saman. 36

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.