Náttúrufræðingurinn - 1998, Blaðsíða 44
(ui) H?IUJBA9[S j|jA gœn
5. mynd. Hitabreytingar með
hæð i lofti þar sem eðlismassi
breytist ekki með hœð, í
stöðluðum lofthjúpi (algengt),
og tnœld gildi yfir Reykja-
nesskaga á hádegi 14. júlí
1990. - Temperature lapse
rate in an atmosphere at con-
stant density (eðlismassi
fasti), in the standard atmo-
sphere (algengt) and as ob-
served above Keflavík Airport
on 14 July 1990 at 1200 UTC.
munur kemur ekki á óvart, því Þingvellir eru
eina stöðin sem ekki er nálægt sjó og
yfirborð sjávar veitir vindi minna viðnám en
hrjúft landslag. Að jafnaði er því hvassara
við strendur en í innsveitum. A stöðvunum
fjórum vekur athygli að suðaustanátt og
suðvestanátt eru hvassari en vindur af
öðrum áttum. Það kemur heldur ekki á óvart,
því hvassviðri fylgja lægðagangi og flestar
lægðir koma úr suðvestri með hvössum
vindi af suðaustri sem síðan snýst til
suðvesturs þegar lægðin heldur áfram för
sinni í norðaustur. Ekki er með öllu ljóst hví
norðvestanáttin er ekki hvassari en raun ber
vitni, en hugsanlegt er að það tengist
afmyndun lægðanna þegar þær fara norður
um Grænlandssund. Verður það væntanlega
kannað innan tíðar. Vindurinn á Þingvöllum,
sem sýndur er á 4. mynd, er harla ólíkur
meðaltali stöðvanna fjögurra. Tvennt vekur
sérstaka athygli. Annars vegar er suð-
austanáttin síst hvassari en aðrar vindáttir
og raunar er vindur af suðaustri á
Þingvöllum hægari en meðalvindur af öllum
áttum. Munar þar töluverðu á Þingvöllum
og stöðvunum fjórum suðvestanlands, og
kemur það heim og saman við reikni-
tilraunina (3. mynd). Hins vegar er norðanátt
á Þingvöllum hvassari en á hinum
stöðvunum fjórum.
■ HITAFALL MEÐ HÆÐ
OG STAÐBUNDNIR
VINDSTRENGIR
Hafa nú vaknað allmargar spurningar sem
ósvarað er. Hvernig stendur á vindstrengn-
um undirEsjunni og hinni hvössu norðanátt
á Þingvöllum? Hvernig má skýra skjólið sem
myndast á víð og dreif um reiknisvæðið á 3.
mynd, m.a. á Þingvöllum? Til að gera sér
grein fyrir þessu er nauðsynlegt að líta (il
lagskiptingar neðsta hluta veðrahvolfsins
og þess hvernig eðlismassi loftsins breytist
með hæð.
42