Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1998, Page 58

Náttúrufræðingurinn - 1998, Page 58
þó klór og bór einnig verið notuð mikið sem kenniefni hér á landi. Athuganir á grunnvatnsstreymi með íbættum kenniefnum hafa aukist mjög á þessum áratug. Þær byggjast á því að bæta kenniefni í vatn sem dælt er niður í borholu á tilteknu svæði og fylgjast síðan með hversu fljótt og í hve miklum mæli þetta efni skilar sér í vatn sem streymir úr öðrum borholum á svæðinu. I þessari grein verður fjallað um helstu kenniefni sem notuð hafa verið við grunn- vatnsathuganir hér á landi og þær forsendur sem liggja til grundvallar notkun þeirra. í annarri grein í Náttúrufræðingnum verður fjallað um niðurstöður athugana með kenniefnum á uppruna lághitavatns hér á landi og rennslisleiðum þess í berggrunni. ■ TVÍVETNI OG SÚREFNI-18 Uppgufun sjávar í ramma hér að neðan er að finna ýmsar grunnupplýsingar um samsætur vetnis og súrefnis. Þar kemur fram að í vatni í náttúrunni eru mestmegnis tvær samsætur af vetni, einvetni (H) og tvívetni (D), og einnig tvær af súrefni, súrefni-16 (160) og súrefni-18 (lsO). í sjó eru 158 af hverri milljón vetnisfrumeinda tvívetni og 1989,5 af hverri milljón súrefnisfrumeinda súrefni-18. Af- gangurinn er einvetni og súrefni-16. Þær vatnssameindir sem innihalda annaðhvort tvívetni eða súrefni-18 (HDl60 og H,lxO) eru þyngri en þær vatnssameindir sem ein- göngu eru samsettar úr einvetni og súrefni- 16(H2I60). Samsætur vetnis og súrefnis Snemma á 20. öld voru leiddar líkur að því að sum frumefni vœru gerð úr misþungum frumeindum. Orðið „ isotope “ (samsœta) var fyrst notað árið 1913 til að aðgreina misþungar frumeindir sama frumefnis. Fjöldi róteinda í kjarna frumefnis er ávallt hinn sami og rœður sæti þess í lotukerfinu. Auk róteinda eru nifteindir í kjarna, en fjöldi þeirra er breytilegur. Þungi frumeinda sama frumefnis rœðst af heildarfjölda róteinda og nifteinda og getur því verið mismunandi. Vetni hefur eina róteind, en afþvíeru tilþrjár samsœtur (einvetni, tvívetni og þrívetni, táknað með H, D og T). Súrefni hefur átta róteindir og af því eru sömuleiðis þrjár samsætur (táknað með l6Ot 17O og mO og lesið sem súrefhi-16 o.s.frv.). Eitt grammmól afH vegur Ig og eitt grammmól af'sO 18g. Samsœtur súrefnis eru ekki geislavirkar. Það er þrívetni hins vegar, en ekki hinar samsætur vetnisins. 1 náttúrunni er langmest afH og l60. Magn l70 er mjög lítið og kemur ekki frekar við sögu í þessari grein. Sameindin vatn er gerð úr tveimur frumeindum af vetni og einni af súrefni (H20). 1 sjó eru 158 af hverri milljón vetnisfrumeinda í vatnssameindunum tvívetni og 1989,5 afhverri milljón súrefnisfrumeinda lsO. Vatnssameindirnar í sjónum eru þannig að langmestu samsettar úr einvetni (H) og súrefni-16 (,60). Slíkt vatn má einkenna sem HfbO. Sumar sameindirnar hýsa þó eitt tvívetni í stað einvetnis (HDl60) og aðrar ,sO í stað ,óO (HfsO). Vegna fœðar tvívetnis- frumeindanna (D) og súrefnis-18 frumeindanna (,H0) og handahófskenndrar dreifingar þeirra milli vatnssameinda geyma sárafáar sameindir vatns ísjónum tvö tvívetni (D2,60) eða bœði tvívetni og IH0 (HD,80), að ekki sé talað um vatnssameindir sem eingöngu eru gerðar úr þungum frumeindum (DfsO). Það má gleyma þessum fáu þungu sameindum vatns (Df60, HD,sO og D2,sO) í umfjöllun þessarar greinar og líta svo á að sjórinn, sem og annað vatn í náttúrunni, samanstandi afþremur mismunandi vatnssameindum, HfbO, HD,60 og H2,sO. 56

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.