Náttúrufræðingurinn - 1998, Blaðsíða 62
4. mynd. Kort sem sýnir tvívetnisgildi (D %o) í úrkomu á Islandi, „ tvívetniskortið “ (frá
Braga Arnasyni 1976).
súrefnis-18 í lækjum og uppsprettum
sveiflast miklu minna en í úrkomu og oft eru
gildin stöðug, sérstaklega þegar um stórar
uppsprettur er að ræða. Sveiflur í samsætu-
innihaldi úrkomunnar jafnast þannig út í
lækjum og uppsprettum. Þegar samsætu-
hlutfallið í þeim er stöðugt er talið að vatnið
í þeim sýni gildi fyrir meðalársúrkomu á
hverjum stað.
A 3. mynd er sýnt samband milli tvívetnis
og súrefnis-18 í meðalúrkomu á íslandi.
Sambandið er nefnt úrkomulína svæðisins.
Ekki er unnt að lýsa þessu sambandi á
viðunandi hátt með einni beinni línu. Hins
vegar má lýsa því með tveimur línum eins og
lesa má af myndinni. Jöfnurnar fyrir línurnar
tvær eru:
8D = 6,55 8I80- 3,5 (1)
og
8D = 8 8'80+11 (2)
Efri jafnan gildirþegar8'80 S* -10,5%cen
hinfyrir lægri gildi.
Tvívetniskortaf úrkomu
Út frá umfangsmikilli sýnatöku og
mælingum á tvívetni í uppsprettum og
lækjum um allt land dró Bragi Árnason
(1976) upp kort sem sýnir meðaltvívetnis-
innihald úrkomunnar á hverjum stað (4.
mynd). Þetta kort er jafnan nefnt tvívetnis-
kortið. Af kortinu sést að tvívetnisgildi (8D)
úrkomu við suðurströndina er nálægt -50%c,
þ.e. tvívetnisinnihald úrkomunnar er 50%c,
eða 5%, lægra en í sjó. Tvívetnisgildi
úrkomunnar lækkar með fjarlægð frá sjó og
hæð. Það er lægst í norðanverðum Vatna-
jökli, aðeins lægra en -100%o. Við norður-
ströndina eru tvívetnisgildin nokkru lægri
en við suðurströndina. Stafar það að hluta
af því að úrkoma norðanlands er sumpart
ættuð frá loftraka norðan úr höfum, þar sem
hiti er lægri en suður í höfum og úrkoman því
snauðari af tvívetni. Að hluta stafar
munurinn af því að úrkoma sem fellur
norðanlands í sunnanátt er orðin léttari
60