Náttúrufræðingurinn - 1998, Page 77
margt fleira af snotrum og áhugaverðum
náttúrufyrirbærum.
Föstudagsmorgun, 26, júlí, var lagt upp
um kl. 9 frá Laugarbóli af stað í Árneshrepp.
Veður var hagstætt, 10-12°C og þurrt, hæg
austan gola og sólfarsvindar, löngum
léttskýjað og sólfar. Staldrað var drjúga
stund norðan við Kaldbaksvík og notið
útsýnis til Kaldbakshorns, skoðaðar fjörur
og litið á gróður. Aftur var staldrað á
Veiðileysuhálsi, litið á berggrunn og farið
yfir landmótun svæðisins við upphleðslu
megineldstöðvar, rof og jöklasvarf.
Hádegishlé var kl. 12-13‘/2 í Djúpuvík, þar
sem skoðaðar voru menjar um síldarútgerð
og aðra forna frægð staðarins. Utan við
Naustavík var staðnæmst og gekk þaðan
hluti leiðangursmanna yfir háls til Bæjar í
Trékyllisvík, en hinir skoðuðu á Ieið sinni
burkna innan Sætrafjalls og staðinn í Gjögri,
einkunr fjöruna og fiskimannvirki. Kaffihlé
var tekið á ströndinni hjá Bæ, en þar er líka
margt að skoða. Þaðan var farið út að
Munaðarnesi og skyggnst norður um
Norður-Strandir og inn í Ingólfsfjörð. Komið
var við í kaupstaðnum í Norðurfirði á
bakaleið, en þaðan var farið um kl. 18V2 með
viðkomu hjáEyjum á Bölum og komið um kl.
21 að Laugabóli.
Laugardaginn 27. júlí var lagt upp um kl.
10 frá Laugabóli og haldið yfir í Djúp um
Steingrímsfjarðarheiði. Veður var einkar
gott, 12-13°C og enn hlýrra um hríð
síðdegis, hæg austan gola og logn síðdegis,
léttskýjað og sólskin. Staldrað var hjá
kirkjunni á Nauteyri, en þar bættist Jóhann
Þórðarson í förina ineð leiðsögn og skildi
þar við leiðangurinn á bakaleiðinni. Komið
var um kl. 12 út að Tyrðilmýri á Snæfjalla-
strönd og tekið hádegishlé. Um kl. 13 kom
Jónas Kristjánsson í Æðey á ferjuskipi sínu
og flutti hópinn í tveimur ferðunt út í eyna.
Þar var gengið um eyna, skoðað æðarvarp,
klettaborgir, gróðurfar, fuglalíf og fleira.
Kaffihlé var tekið hjá Jónasi og hans fólki og
var þar ekki í kot vísað um veitingar, en auk
þess margt forvitnilegt að sjá við bæjar-
voginn sjálfan. Ferjaði Jónas svo
leiðangurinn aftur í land og var lagt upp frá
Tyrðilmýri uin kl. 17‘/2. Staldrað var á
jökulgörðunum í Kaldalóni og skyggnst um
jökulmenjar þar. Um kl. 2OV2 var komið í
náttstað á Reykjanesi í einkar fögru veðri.
Notuðu margir tækifærið og skoðuðu
hverasvæðið á föstu landi og í fjöru, fuglalíf
og gróður.
Sunnudaginn 28. júlí varlagt upp um kl. 10
og farið um Vatnsfjörð, þar sem staldrað var
stutt, Mjóafjörð og Eyrarfjall en síðan haldið
suður Þorskafjarðarheiði til Breiðafjarðar.
Veður hélst gott í Gilsfjörð, 10-12°C, skýjað
en þurrt og suðvestan gola. Rigning var
suður um Dali og Borgarfjörð en bjartviðri í
Reykjavík, þegar þangað var komið.
Hádegishlé var tekið um kl. 13 í Bjarkarlundi
í dumbungsveðri. Inni í Gilsfirði bar svo vel
til að ernir sáust á flugi og á firðinum og var
staðnæmst til að fylgjast með þeim. Staldrað
var í Búðardal og Borgarnesi en komið um kl.
18V2 til Reykjavíkur, þar sem ferðinni lauk.
Þátttakendur í ferðinni voru 50. Aðal-
leiðsögumaður var Gerður Sturlaugsdóttir,
fyrrverandi kennari og leiðsögumaður, sem
er upprunnin við Djúp og ættuð af
Ströndum og þekkir hvern stein á þessum
slóðum. Gerður hefur verið ötull þátttakandi
í ferðum HÍN um langt skeið. Gísli Már
Gíslason, líffræðingur og prófessor, veitti
leiðsögn um lífríki en Ómar Bjarki Smárason,
jarðfræðingur, veitti leiðsögn unt jarðfræði á
föstudag og laugardag. Jóhann Þórðarson,
lögfræðingur, veitti leiðsögn við Djúp á
laugardag. Fararstjórar voru jarðfræðing-
arnir Freysteinn Sigurðsson, formaður HÍN,
og Guttormur Sigbjarnarson, framkvæmda-
stjóri HIN, og veittu þeir einnig leiðsögn um
eitt og annað. Ferð þessi þótti takast
fádæma vel og stuðlaði ekki síst að því
einkar hagstætt veður og frábær leiðsögn,
en þó mun ferðina út í Æðey hafa borið
hæst.
SVEPPAFERÐ I HeIÐMÖRK
Laugardaginn 24. ágúst var farin
sveppatínsluferð í Heiðmörk f samvinnu við
Ferðafélag Islands. Leiðsögumaður var
hinn ötuli sveppasérfræðingur Ása Margét
Ásgrímsdóttir, hjúkrunarfræðingur. Farar-
stjóri varGuttormur Sigbjarnarson. Einmuna
blíðviðri var og þátttakendur 95 talsins.
75