Náttúrufræðingurinn - 1984, Page 12
ágúst 1981, sama mánaðardag og ís-
lenska þjóðin eignaðist Geysi 46 árum
áður, fór umsjónarmaður svæðisins að
næturþeli með loftpressu að Geysi og
hreinsaði burtu kísilhrúður sem fyllt
hafði raufina. Nýja raufin varð dýpri
en sú frá 1935, 70 cm djúp og 25 cm
breið. Geysir varð ókvæða við og gaus
tignarlega er vatnsborðið í skálinni
lækkaði og skvetti síðan úr sér nær
daglega þar til hlaðið var yfir raufina
og henni lokað árið 1983. Munu gosin
hafa náð 50-60 m þegar best lét.
Raufinni var þó lokað þannig að unnt
er að opna hana, lækka vatnsborðið í
skálinni og láta hverinn gjósa.
Þetta skrítna atvik í sögu íslenskrar
náttúruverndar leiðir hugann að
verndun slíkra svæða og hverja virð-
ingu almenningur ber fyrir lagastöfum
og reglum yfirleitt. í reglum um um-
ferð um Geysissvæðið segir: „Þá eru
gestir beðnir um að forðast óþarfa
traðk á hverahrúðri, einkum þar sem
vatn flœðir um og hrúðurbreiða er í
myndun. “ Hvernig er hægt að ætlast til
að vegfarendur taki slíkar reglur alvar-
lega, þegar sjálfur umsjónarmaðurinn
ræðst að hinum frægustu náttúruminj-
um með múrbrjótum? Það myndi frek-
ar sæma að þeir sem um þetta svæði
eiga að sjá gangi fram fyrir skjöldu
með góða umgengni. Hroðalegt er að
sjá hvernig hrúðurhellan umhverfis
Geysi hefur traðkast niður og molnað,
þegar Geysis nýtur ekki til að bæta úr
með nýmyndun kísils.
Það er gamall siður á íslandi að fara
illa með landið og öll þess gæði, hvort
sem er á láði eða í legi. Hvenær náum
við þeim andlega þroska að lifa í sátt
við þetta hrjóstruga land - hvað þá
hver við annan?
SUMMARY
The Great Geysir conjured up
by
Helgi Torfason
National Energy Authority
Grensásvegur 9
108 Reykjavík
The famous Great Geysir in Haukadal-
ur, South Iceland was conjured up in 30th
of August 1981. The Great Geysir had
been dormant for decades due to the build-
up of silica around its bowl and hence
overload on the watercolumn in the pipe.
In 1935 a narrow channel was dug in the
northern edge of the Geyser bowl. It was
now filled with silica deposits and nearby
farmers used pneumatic hammers to clean
it and deepen to 70 cm. This resulted in
renewed activity so the geyser erupted to
50-60 m height. This provoked delight
over the beauty of the eruptions on one
hand and on the other disgust over the
savage methods used to drain the bowl.
The channel was covered in 1983, but in
such a way that it is possible to drain the
bowl and enjoy the magnificient eruptions.
As for conservation, Icelanders have a lot
to learn.
6