Náttúrufræðingurinn - 1984, Page 58
Frá ritstjóra
Allt frá þeim tíma sem Náttúrufræð-
ingurinn hóf göngu sína hafa ritstjórar
hans reynt að haga útliti ritsins og
efnismeðferð í samræmi við það sem
best má vera á hverjum tíma. Því hef-
ur útlit ritsins sífellt verið að breytast
og verður svo vonandi um alla fram-
tíð. í síðasta hefti var forsíða litprent-
uð og verður svo áfram. Þegar ritið
verður komið á rétt ár, er litprentun
mynda inn í ritið næst á óskalistanum.
Nokkrar myndir voru í litum í síðasta
hefti og verður einnig í næstu heftum,
en litprentun mun koma til með að
hækka útgáfukostnað og því áskriftar-
gjöld. Það er mín skoðun að litprentun
sé nauðsynleg í rit eins og Náttúru-
fræðinginn, bæði vegna augnayndis og
einnig vegna þess að greining ýmissa
náttúrufyrirbrigða byggir á mismun-
andi litum, auk þess sem skýringar-
myndir verða einfaldari. Vinna við út-
lit ritsins mun aukast eitthvað og er þó
nóg fyrir.
í síðasta hefti varð breyting á heim-
ildaskráningu í greinum og eru íslend-
ingar nú skráðir samkvæmt gildandi
venjum hérlendis og því skírnarnafn
látið ráða, eins og í símaskránni, en
ekki föðurnafn eins og tíðkast hafði
um langan tíma. Þessi breyting hefur
mælst vel fyrir hjá öllum sem skrifa í
og lesa ritið.
í þessu hefti verða þau miklu um-
skipti að stjórn félagsins hefur skipað
nýja ritnefnd. Hefur ritnefndin verið
stækkuð úr fimm í tólf manns og í
fyrsta sinn í sögu ritsins fá nú konur að
hafa áhrif á efni þess. Einnig hefur
Aðalbjörg Jónasdóttir verið ráðin sem
prófarkalesari og mun hún lesa 2.
dálkapróförk af öllum greinum. í hina
nýju ritnefnd er skipað til þriggja ára í
senn og gert ráð fyrir að skipta um í
þessu tímafreka starfi við og við. í ný-
skipaðri ritnefnd eru:
Árni Einarsson, líffræðingur
Arnþór Garðarsson, dýrafræðingur
Áslaug Helgadóttir, grasafræðingur
Erling Ólafsson, dýrafræðingur
Hákon Aðalsteinsson, vatnalíffræðingur
Hrefna Sigurjónsdóttir, líffræðingur
Ingibjörg Kaldal, jarðfræðingur
Jakob Kristjánsson, líffræðingur
Leifur A. Símonarson, jarðfræðingur
Ólafur S. Ástþórsson, dýrafræðingur
Trausti Jónsson, veðurfræðingur
Þórður Jónsson, eðlisfræðingur
í gömlu ritnefndinni sátu þeir Eyþór
Einarsson, Þorleifur Einarsson, Svein-
björn Björnsson, Örnólfur Thorlacius
og Arnþór Garðarsson. Þeim vil ég
þakka störf í ritnefnd í áraraðir og
þann stuðning sem ritið hefur haft af
veru þeirra þar. Nýskipaða ritnefnd
býð ég velkomna til starfa.
Helgi Torfason.
52