Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1984, Side 81

Náttúrufræðingurinn - 1984, Side 81
ekki reglulega á hverju ári, að því er best er vitað. Ber fyrst og fremst að líta á þessar tegundir sem flækings- fugla. Þeir munu þó fá ítarlegri um- fjöllun en flestir aðrir flækingsfuglar vegna varptilrauna sinna. Snæugla (Nyctea scandiaca) varp til skamms tíma hér á landi en ekki hefur fundist hreiður síðastliðin 25 ár. Hún sést þó árlega og hegðar sér líkt og flækings- fugl, og verður því tekin með. Alls verður um 230 fuglategunda getið í þessum fyrirhugaða greina- flokki. Heitið flækingsfuglar verður notað sem samheiti fyrir allar tegund- irnar, þar sem ekki er völ á öðru betra. í samræmi við það, verður undirtitill greinaflokksins því „Flækingsfuglar á íslandi". SÖGULEGT YFIRLIT Segja má, að skipuleg söfnun upplýs- inga um flækingsfugla hafi byrjað hér á landi árið 1937. Það ár kom Finnur Guðmundsson, fuglafræðingur, heim frá námi í Þýskalandi, og hóf þegar víðtækt samstarf við fuglaskoðara í landinu. Þeir sendu Finni upplýsingar um flækingsfugla sem þeir höfðu séð, einnig fugla er höfðu náðst. Sumir hafa haldið slíkum athugunum til haga í áratugi. Þá eru ótaldir allir þeir sem ekki skoða fugla að staðaldri en hafa snúið sér til Náttúrufræðistofnunar, ef þeir hafa fundið eða séð torkennilega fugla. Fyrstu árin birti Finnur athuganirn- ar í greinaflokki í Náttúrufræðingnum undir heitinu „Fuglanýjungar". Fjórar slíkar greinar komu út, en það voru nokkurs konar ársskýrslur fyrir árin 1938—1943 (Finnur Guðmundsson 1938, 1940, 1942, 1944). Einhverra hluta vegna hættu þessar skýrslur að koma út, og síðan hefur næsta lítið verið birt um flækingsfugla á íslandi, miðað við öll þau gögn sem hafa safn- ast. Upplýsingasöfnun hefur engu að síður verið haldið áfram fram á þenn- an dag. Finnur ól iengi með sér þá hugmynd að vinna gögnin um flækingsfugla til birtingar eftir að hann kæmist á eft- irlaun. Hann lét af störfum hjá Nátt- úrufræðistofnun í árslok 1977, þá far- inn að heilsu. Upplýsingaskráin um flækingsfugla var þá orðin svo mikil að vöxtum, að Finnur hafði engin tök á að vinna úr henni. Þetta var líka langt- um meira verk en flesta, sem þekkja til þessara mála óraði fyrir. Nú hefur áðurnefndur vinnuhópur fuglaáhugamanna tekið höndum sam- an um að vinna þessi gögn. Flestir, sem þar koma við sögu, höfðu náin kynni af Finni og hans starfi. Fyrsti fundurinn um þetta mál var haldinn 4. janúar 1980. Vinnuhópurinn hafði áður komið til undirbúningsfundar 18. apríl árið áður. Finnur sótti þann fund, en lést skömmu áður en til hins fundarins kom. TILGANGUR Tilgangur þess að safna gögnum um flækingsfugla er sá, að öðlast þekkingu á hvaða tegunda verður vart hér á landi, hvernig komum þeirra er hátt- að, hvaðan fuglarnir koma og hversu tíðir þeir eru. Ýmsar viðbótarupplýs- ingar má fá út úr gögnunum, en það fer mjög eftir tegundum. Það mun álit flestra sem gleggst til þekkja og áhuga hafa á flækingsfugl- um, að æskilegt sé að safna öllum til- tækum gögnum á einn stað. Á þann hátt fæst mun betra yfirlit um stöðu einstakra tegunda en ella. Auk þess verður minni hætta á, að athuganir „glatist“, þ. e. komist aldrei lengra en 75
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.