Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1984, Page 84

Náttúrufræðingurinn - 1984, Page 84
reyndari. Fuglaskoðarar ættu aldrei að missa sjónar af vægðarlausri sjálfs- gagnrýni í þessum efnum, jafnvel þótt þeir hafi langa reynslu að baki. Það vill þannig til, að flækingsfuglar koma helst til landsins á þeim árstíma, þegar tegundargreining er torveldust, þ. e. á haustin og vorin. Þá eru fuglar gjarnan í ungfuglabúningi eða í búningaskipt- um, þannig að þeir kunna að líta öðru vísi út en fuglabækur segja til um. Fuglabækur hafa oft ekki myndir af fuglum nema í sumarskrúða, sem get- ur verið gjörólíkur þeim búningi sem fuglar eru í á öðrum árstíma. Margs ber að gæta við greiningu á erfiðum fuglategundum. Einna örðug- ast hefur fuglaskoðurum reynst að átta sig á, hvaða tegundir aðrar koma til greina en sú sem þeir hafa í huga hverju sinni. Við Islendingar erum dá- vel settir hvað varðar fuglasöfn og fag- rit til að styðjast við í ákvörðun á torgreindum fuglum. Engu að síður kemur það fyrir, að senda þarf fugla erlendis til að fá skorið úr um hvaða tegund þeir tilheyra. Seint verður of oft brýnt fyrir fuglaskoðurum að fara að öllu með gát í tegundagreiningum. í mörgum nágrannalöndunum eru sérstakar dómnefndir (svokallaðar „rarities committees" eða „sjælden- Tafla I. Leiðbeiningar um útfyllingu spjalda fyrir fuglaskrá Náttúrufræðistofnunar. Töluliðirnir samsvara þeim, sem eru á sýnishorni af spjöldunum á 1. mynd. - Instructi- ons for the use of standardized record cards, as depicted in Fig. 1. 1. TEGUND: Hér skal skrá heiti tegundar. Tvímælalaust skal skrá: (a) alla flækings- fugla, hvort sem þeir nást, finnast dauðir eða einungis sjást, (b) sjaldséða íslenska varpfugla, (c) alla vetrargesti, (d) fargesti og (e) stakar athuganir á algengum íslenskum varpfuglum, t. d. ef fuglar sjást á óvenjulegum stað eða tíma. 2. UNDIRTEGUND: í aðeins fáum tilfellum er unnt að greina undirtegundir (deili- tegundir) í náttúrunni, jafnvel þótt fuglarnir náist. Oftast mun því ekki unnt að fylla út þennan reit. 3. ATHUGANAMAÐUR (finnandi) OG HEIMILISFANG: Skrá skal nafn þess (nöfn þeirra) sem fann (fundu) fuglinn fyrst, eða þess sem kemur athuguninni á framfæri. 4. STAÐUR: Staðurinn skal tilgreindur eins nákvæmlega og unnt er. Til sveita er venjulega hægast að rita nafn bæjar, hrepp og sýslu, en nafn bæjarfélags í þéttbýli. Ef hvorugt á við, skal nota eitthvert áberandi örnefni, sem finnst á korti. Nánari staðsetningu innan bæjarfélags eða jarðar (t. d. innan borgarmarka Reykjavíkur) er hægt að setja innan sviga strax á eftir bæjarheiti. Ennfremur má setja nánari staðsetningu í dálk 10. 5. REITUR: Verður útfylltur á Náttúrufræðistofnun. 6. SÉÐ EÐA NÁÐ; HVERNIG NÁÐ; HVAÐ GERT VIÐ HANN (þá): Setja skal NÁÐ eða SÉÐ eftir því hvort fuglinn hafi verið handleikinn eða ekki. í seinni dálkinn skal skrá hvort fuglinn hafi fundist dauður, verið skotinn, leifar af honum fundist, o. s. frv. Ef fugli er náð lifandi, skal skrá, hvort honum hafi verið sleppt, verið merktur, deyddur eða annað sem við á. 7. ATHUGANATÍMABIL; SÖFNUNARDAGUR; SAFNANDI: Ef fugli er safnað (verið skotinn, fundist dauður), skal skrá dagsetningu fundar í reitinn SÖFNUNAR- DAGUR, annars í fyrri dálkinn. Sumir fuglar halda sig á sama stað yfir nokkurt 78
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.