Náttúrufræðingurinn - 1984, Side 86
segir til um. Nokkrar tegundir þurfa
ítarlegri umfjöllun en þá sem unnt er
að gefa í þessum yfirlitsgreinum.
Þeirra verður því aðeins lítillega getið
þar, en nánar í sérstökum ritgerðum.
Framvegis er ætlunin að birta ný
gögn um flækingsfugla í sérstökum
ársskýrslum, og koma þannig í veg
fyrir, að óbirt gögn af þessu tagi safnist
fyrir á nýjan leik. Þrjár slíkar skýrslur
eru þegar komnar út, og taka þær yfir
árin 1979, 1980 og 1981 (Gunnlaugur
Pétursson og Kristinn Haukur Skarp-
héðinsson 1980, 1982, 1983). Enn-
fremur verður leitast við að skýra frá
nýjum fuglategundum á íslandi, eftir
því sem ástæða þykir til, svo og nýjum
varptegundum.
LOKAORÐ
Greinarkorn þetta er ritað í þeim
tilgangi að vekja athygli á því sam-
starfi sem hér hefur verið lýst. Því er
einnig ætlað að vera inngangur að
væntanlegri greinaröð um flækings-
fugla á íslandi.
Margir aðilar hafa unnið mikið starf
við gagnasöfnun, sem liggur að baki
áætlaðri greinaröð, svo og við undir-
búning og úrvinnslu. Ekki er unnt að
nefna þá alla, en mér er ljúft og skylt
að geta tveggja manna, sem hvor á
sinn hátt, hafa átt drýgstan þátt í öflun
og varðveislu gagnanna. Það eru þeir
Finnur Guðmundsson og Hálfdán
Björnsson á Kvískerjum. Finnur stóð
fyrir söfnun upplýsinga um flækings-
fugla í full 40 ár en auðnaðist ekki að
fullvinna gögnin. Hálfdán hefur með
athugunum sínum, sem ná yfir um 45
ár, lagt til verulegan hluta þeirra
gagna sem hér um ræðir. Hann hefur,
svo nokkuð sé nefnt, bætt um 50 nýj-
um tegundum á fuglalista landsins,
eða tæplega 20% þeirra tegunda sem
sést hafa á íslandi.
Að endingu vil ég hvetja áhugasama
fuglaskoðara til samstarfs, annaðhvort
með að skrifa til Náttúrufræðistofnun-
ar íslands (pósthólf 5320, 125 Reykja-
vík), eða hringja í síma (91)-29822.
ÞAKKIR
Erling Ólafsson las handritið yfir og
færði margt til betri vegar, og á hann
þakkir skildar.
HEIMILDIR
Finnur Guðmundsson. 1938. Fuglanýjung-
ar. — Náttúrufræðingurinn 8: 164—167.
Finnur Guðmundsson. 1940. Fuglanýjung-
ar I. (Skýrsla fyrir árin 1938 og 1939).
- Náttúrufræðingurinn 10: 4—34.
Finnur Guðmundsson. 1942. Fuglanýjung-
ar II. (Skýrsla fyrir árin 1940 og 1941).
— Náttúrufræðingurinn 12: 161 — 188.
Finnur Guðmundsson. 1944. Fuglanýjung-
ar III. (Skýrsla fyrir árin 1942 og 1943).
— Náttúrufræðingurinn 14: 107—137.
Gunnlaugur Pétursson & Kristinn Haukur
Skarphéðinsson. 1980. Sjaldgæfir fugl-
ar á íslandi 1979. — Náttúrufræðistofn-
un íslands. Fjölrit. 35 bls. Reykjavík.
Gunnlaugur Pétursson & Kristinn Haukur
Skarphéðinsson. 1982. Sjaldgæfir fugl-
ar á fslandi 1980. — Náttúrufræðistofn-
un íslands. Fjölrit. 51 bls. Reykjavík.
Gunnlaugur Pétursson & Kristinn Haukur
Skarphéðinsson. 1983. Sjaldgæfir fugl-
ar á íslandi 1981. - Bliki 1: 17-39.
Voous, K. H. 1973. List of recent Hol-
arctic bird species. Non-passerines. —
Ibis 115: 612-638.
Voous, K. H. 1977. List of recent Hol-
arctic bird species. Passerines. — Ibis
119: 223-250, 376-406.
80