Náttúrufræðingurinn - 1984, Side 90
niður þjónustudeild þá sem séð hefur um
prentun álímingarmiða og gíróseðla.
Stjórnin hefur haft samband við annað
fyrirtæki, Kerfishönnun, um að taka að sér
þessa þjónustu.
Náttúrufræðifélagið sendi tvo fulltrúa á
Landverndarfund í Bifröst í Borgarfirði
þau Sigríði Theódórsdóttur og Tómas Ein-
arsson, bæði kennarar, en efni fundarins
var umhverfisfræðsla í skólum. Náttúru-
fræðifélaginu er samkvæmt lögum skylt að
skipa fulltrúa í Dýraverndarnefnd. Þór
Guðjónsson hefur um langt árabil átt þar
setu tilnefndur af Náttúrufræðifélaginu.
Hann óskaði eftir því við stjórn félagsins
að verða leystur frá því starfi. Stjórnin
þakkar Þór Guðjónssyni störf hans í nefnd-
inni. Var Sigurður H. Richter líffræðingur
útnefndur í hans stað.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur fyrir árið 1982 var haldinn f
stofu 101 í Lögbergi. 11 félagar sóttu fund-
inn. Fundarstjóri var kosinn Tómas Ein-
arsson og fundarritari Axel Kaaber.
Formaður félagsins minntist látinna fé-
laga og las skýrslu stjórnar um síðasta
starfsár. Gjaldkeri las upp reikninga fé-
lagsins og voru þeir samþykktir.
Náttúrugripasafn kom enn til umræðu
og voru fundarmenn hvetjandi þess að
stjórnin léti á einhvern hátt til sín taka í því
máli.
Sigurður Richter nýr fulltrúi Náttúru-
fræðifélagsins í Dýraverndarnefnd tók til
máls og rakti tilgang og fyrri störf nefnd-
arinnar og greindi frá því helsta sem fyrir
henni liggur.
Baldur Sveinsson og Axel Kaaber áttu
að ganga úr stjórn félagsins. Baldur hefur
setið í stjórninni í 10 ár og gaf ekki kost á
sér til áframhaldandi stjórnarsetu, en Axel
gaf kost á sér til endurkjörs. Var Axel
endurkjörinn, og Jón Eiríksson jarðfræð-
ingur var kosinn í stað Baldurs. í vara-
stjórn voru endurkjörnir Einar B. Pálsson
og Berþór Jóhannsson. Endurskoðendur
voru endurkjörnir þeir Magnús Árnason
og Tómás Helgason, og varaendurskoð-
andi endurkjörinn Gestur Guðfinnsson.
Stjórnin flutti tillögu um að hækka árgjald
félagsins úr 200 kr. í 300 kr., og var hún
samþykkt.
FRÆÐSLUSAMKOMUR
Á árinu 1982 voru haldnir 6 fræðslufund-
ir, alltaf í Árnagarði stofu 201. Efni var
fjölbreytt að venju og jafnan fyrirspurnir
og umræður í lok erinda eins og við mátti
búast. Aðsókn að fyrirlestrum var jöfn og
mikil miðað við það sem oft hefur verið
áður, oftast húsfyllir. Flestir voru fundar-
gestir um 120, fæstir 30. Alls komu 400
manns á fræðslufundina.
Fyrirlesarar og efni fyrirlestra var sem
hér segir:
25. janúar:
Fyrirlesarar Helgi Torfason, Eyþór Ein-
arsson og Erling Ólafsson. Efnið: Jarð-
fræði, gróður og dýralíf Esjufjalla.
22. febrúar:
Fyrirlesarar Sigurður Þórarinsson, Karl
Grönvold og Kristján Sæmundsson. Efnið:
Heklugosið 1980-1981.
29. mars:
Fyrirlesari Páll Einarsson. Efnið:
Jarðskjálftasprungur á Suðurlandi.
26. apríl:
Fyrirlesari Skarphéðinn Þórisson dýra-
fræðingur. Efnið: Hreindýr á íslandi.
25. október:
Fyrirlesari Helgi Björnsson jöklafræð-
ingur. Efnið: Landslag undir Vatnajökli og
Mýrdalsjökli og afrennsli íss og vatns.
29. nóvember:
Fyrirlesari Guðrún Larsen jarðfræðing-
ur. Efnið: Yngstu gos á Tungnársvæði.
Stjórnin þakkar fyrirlesurum fyrir þeirra
framlag til félagsstarfsins og sömuleiðis
fundargestum fyrir þeirra áhuga. Óneitan-
lega er það stjórninni nokkur hvatning
þegar fundir sem þessir eru jafnvel sóttir
og var á liðnu ári.
84