Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1984, Page 97

Náttúrufræðingurinn - 1984, Page 97
ar eftir Ævar Petersen (46 bls.), Máfar, kjóar og skúmar eftir Agnar Ingólfsson (16 bls.), Andfuglar og aðrir vatnafuglar eftir Arnþór Garðarsson (40 bls.), Vaðfuglar eftir Árna Waag Hjálmarsson (32 bls.), Rjúpa eftir Arnþór Garðarsson (16 bls.), Ránfuglar og uglur eftir Kjartan G. Magn- ússon og Ólaf K. Nielsen (16 bls.), og Spörfuglar eftir Kristinn Hauk Skarphéð- insson (27 bls.). Fyrsta greinin fjallar um sjófugla, sem Ævar Petersen skilgreinir á eftirfarandi hátt: Tegundir, „sem eru háðar sjónum að öllu eða verulegu leyti með fæðuöflun, ala þar nær allan aldur sinn og verpa yfirleitt við sjó“. Alls nefnir Ævar 23 tegundir sjófugla, sem verpa við ísland. Af þeim tekur hann 15 til umfjöllunar, en hinar er fjallað um í öðrum greinum. Að auki er minnst á geirfuglinn. Gerð er grein fyrir ætterni þessa fjölbreytilega hóps, stofn- stærðum og lífsháttum, m. a. varpháttum, fæðu og vetrarheimkynnum. Á kortum eru sýndir varpstaðir sumra tegundanna og einnig hvar merktir fuglar hafa endur- heimst erlendis. Þá er að lokum fjallað um samskipti manna og sjófugla, sem hafa alla tíð verið okkur íslendingum mikilvæg. Grein Agnars Ingólfssonar um máfa, kjóa og skúma fyllir að mestu upp í tölu sjófuglanna. Gerir Agnar grein fyrir út- breiðslu tegundanna hér á landi, varp- stöðvum og fari, einnig varpháttum og fæðu. Fjallað er um fjölgun máfa og sam- skipti manna við þá, en þau hafa verið allsérstæð. Skrifað er um áhrif máfa á villt dýr og fækkun þeirra, m. a. bent á raunhæfustu lausn þess vanda, sem offjölg- un máfa hefur skapað. Væri vel ef þeir aðilar, sem um þessi mál þurfa að fjalla, læsu þessa grein. í greininni um andfugla og aðra vatna- fugla fjallar Arnþór Garðarsson um 14 tegundir anda, 5 tegundir gæsa (en af þeim eru 3 tegundir fargestir hér á landi), álft, himbrima, lóm og flórgoða. Andfuglar hafa verið mikið rannsakaðir hér á landi á síðasta áratug, t. d. endur á Mývatni og heiðagæsir í Þjórsárverum, og eru ýmsar þær upplýsingar, sem fram koma í greininni því ferskar. í greininni um vaðfugla er fjallað um 13 tegundir íslenskra vaðfugla, auk 4 tegunda, sem eru hér vetrar- eða fargestir. Einnig eru teknar fyrir tegundir af tveimur öðrum ættum, þ. e. ættum vatnahænsna og hegra. í lokaorðum greinarinnar ræðir Árni Waag Hjálmarsson um umhverfis- mál, og eru þar mörg orð í tíma töluð. Rjúpunni eru gerð skil í sérstakri grein, enda á hún vart samleið með öðrum teg- undum hérlendum. Fjallar Arnþór Garð- arsson þar m. a. um lífshætti hennar og lífsbaráttu, þar sem marga hættuna þarf að varast. Rjúpan er mjög áhugaverð vegna hinna miklu og reglulegu stofnsveiflna, sem menn skilja engan veginn til fulls. Rjúpan er vinsæll veiðifugl og fýsir því sjálfsagt margan að kynnast henni nánar. Ránfuglar og uglur eru tveir óskyldir ætt- bálkar, sem Kjartan G. Magnússon og Ól- afur K. Nielsen taka fyrir í einni grein, vegna þess að tegundirnar 5, sem fyrir koma, lifa á ránum. Haförn og fálki fá þar myndarlega umfjöllun, enda liggja miklar upplýsingar fyrir um þær tegundir. Annar höfunda (Ó. K. N.) hefur t. d. helgað sig rannsóknum á fálkum undanfarin ár. Þá er í lokin bent á þá hættu, sem steðjar að ránfuglum af völdum eiturmengunar og ágengni manna. Síðasta greinin fjallar um spörfugla. Kristinn Haukur Skarphéðinsson tekur þar fyrir 9 tegundir, sem verpa hér reglulega, og nokkrar, sem hafa orpið hér stöku sinn- um. Hrafninn fær ítarlegustu umfjöl- lunina, enda allsérstæður í þessum hópi og svarti sauðurinn í margra augun. Fjallar höfundur um deilitegundir íslensku spör- fuglanna, far og vetrarsvöðvar. Þá er kafli með sögulegu ágripi um fuglafriðun og nokkur orð um fornar nytjar á spörfuglum. Ekki fer á milli mála, að hér er á ferðinni merk bók og gagnleg. Á hún ef- laust eftir að verða mikið notuð í skólum, þar sem upplýsingar, sem hún hefur að geyma, eru mjög aðgengilegar. Þá er í bókinni fjöldi ljósmynda, korta og línurita. Alls eru í henni 62 ljósmyndir af fuglum (þar af 13 litmyndir) eftir ýmsa höfunda. Flestar myndanna hafa ekki áður sést á prenti. Því er ekki að neita, að myndirnar 91
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.