Náttúrufræðingurinn - 1984, Side 100
eru einnig tilgreind og oftast norsk og
dönsk nöfn, og í mörgum tilvikum einnig
þýsk nöfn. Við hverja tegund eru svo upp-
lýsingar um nytsemi hennar, en mjög mis-
ýtarlegar eftir tegundum eða allt frá 3—4
línum upp í 3-4 blaðsíður. Aftur á móti
eru litlar sem engar lýsingar á tegundunum
sjálfum í skránni, eða aðrar leiðbeiningar
til að auðvelda lesanda að þekkja þær,
nema hvað sagt er við hvers konar stað-
hætti sumar tegundanna vaxi. Bókin hlýtur
því að hafa verið nokkuð erfið í notkun
fyrir aðra en þá sem þekktu tegundirnar
áður.
Hvorki íslensku eða latnesku nöfnin eru
alltaf þau sömu og nú eru notuð, þannig að
á stöku stað er erfitt að átta sig á því hvaða
tegund höfundur á við, en oftast er það þó
auðvelt fyrir þann sem þekkir eithvað til
íslensku flórunnar og nafna á tegundum.
í þessari endurútgáfu Grasnytja gerir
Helgi Hallgrímsson nokkra grein fyrir til-
urð og texta frumútgáfunnar í formála, og í
skýringum og skrám reynir hann að varpa
nokkru ljósi á tegundanöfnin í bókinni.
Hvort tveggja virðist mér hafa tekist prýði-
lega og enginn vafi á að nafnaskýringar
Helga eru í langflestum tilvikum réttar, að
minnsta kosti hvað blómplöntur og byrkn-
inga varðar.
Ljósprentun frumútgáfunnar er með
ágætum, framúrskarandi skýr og góð og
frágangur þessarar 2. útgáfu allur hinn
vandaðasti og á það ekki síst við um hið
fallega og látlausa band sem hún er bundin
í.
2. útgáfa Grasnytja Björns Halldórs-
sonar er eiguleg bók og athyglisverð, að
vísu einkum af sögulegum ástæðum, en
einnig vegna þess að upplýsingarnar um
nytsemi þeirra tegunda sem þar er fjallað
um standa víðast enn fyrir sínu, þó ef til
vill sé minni þörf fyrir þær nú en þegar
Grasnytjar komu fyrst út fyrir 200 árum.
Útgefendur hennar, ásamt Helga Hall-
grímssyni sem sá um útgáfuna, eiga þakkir
skildar fyrir lofsvert framtak.
Eyþór Einarsson
PRJÁR BÆKUR UM ELDFJÖLL
Eldfjöll eru hluti af daglegu lífi okkar
íslendinga. Á undanförnum öldum hafa
þau valdið búsifjum í landinu, ausið ösku
og vikri yfir ræktuð landsvæði og hraun
runnið yfir tún og bæi. Þannig er áhuginn
vakinn, hvort sem okkur líkar vel eða illa
— og skynsamasta leiðin er sú að reyna að
kynnast þessum eldspúandi óróaseggjum,
læra að þekkja hegðan þeirra og þannig
læra að varast tjón af þeirra völdum sem
okkur er framast unnt. Þær þrjár bækur
um eldfjöll sem sagt verður frá hér að
neðan eru mjög ólíkar en áhugaverðar í
meira lagi. Þær eru sniðnar fyrir lesendur
sem hafa áhuga á eldvirkni, og ekki ein-
ungis fyrir sérfræðinga, þó þeir hafi líka
bæði gagn og gaman af lestri þeirra.
VOLCANO
Eftir ritstjóra Time-Life bókanna
Time-Life Books
Amsterdam, 1982, 176 bls.
Af þessum þremur eldfjallabókum er
þessi sú skemmtilegasta aflestrar, að hin-
um ólöstuðum. Textinn er skrifaður af
hópi manna sem er þaulreyndur við að
miðla þekkingu til almennings, — ekki sér-
fræðinga. Stór hluti bókarinnar er um sögu
eldfjallafræðinnar, líf eldfjallanna og
þeirra sem fengust við rannsókn þeirra.
Eldfjöllin eru gædd lífi og eru lýsingar á
frægum eldgosum svo ljóslifandi að ekki er
neinn möguleiki að leggja bókina frá sér í
miðjum kafla. Margar ljósmyndir eru í
bókinni, sem ásamt framúrskarandi skýr-
ingamyndum koma til móts við lipran text-
ann, svo að heildarmynd bókarinnar er
bæði aðlaðandi og ljós. Ekki skaðar að
myndir eru allar í litum.
Bókin skiptist í sex kafla og sex ritgerðir
„Essays", sem fléttast saman í eina heild.
Kaflarnir innihalda meginefni bókarinnar,
en ritgerðirnar eru frekari skýringar, sumir
að mestu myndir. Kaflarnir eru þessir: 1.
The awakening of the dragon, 2. Assemb-
ling pieces of the puzzle, 3. The rise of
modern volcanology, 4. Shadows over the
94