Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1959, Page 34

Náttúrufræðingurinn - 1959, Page 34
192 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Sigurður Pétursson: Náttúrufræði og nútímaskólar Það er háttur mannsins, þegar hann vill gera sér grein fyrir hlutum, að hann gefur þeim nafn og skipar þeim í kerfi. Nafn- giftir og kerfun á jurtunum og dýrunum er þekktasta dæmið um þessa viðleitni. Nú er það svo með marga náttúrulega hluti, að þeir láta ekki svo auðveldlega skipa sér í ákveðið kerfi, og reyn- ist oft erfitt að finna þeim stað, svo að vel fari. Kemur þar fram annars vegar sú sífella (continuity), sem víða ríkir í náttúrunni, og hins vegar sú takmörkun mannshugans, að hugsa sér hlutina í af- mörkuðum tegundum, flokkum og fylkingum. En það er ekki aðeins nafngiftir og kerfun á hinum náttúrlegu hlutum, sem oft eru dálítið á reiki, heldur eru nöfnin á sjálfum fræðigreinunuin stundum ónákvæm. Á þetta ekki hvað sízt við um orðin náttúrusaga, náttúrufræði, náttúrufræðingur og náttúruvís- indi. Það er t. d. ekki venja að telja eðlisfræðing eða efnafræðing til náttúrufræðinga og því síður lækni eða verkfræðing. Þó neitar því enginn, að allir fást þessir sérfræðingar við náttúrulega hluti. Hvað er náttúrufrœði? Rétt er að gera sér þegar ljóst, hvað átt er við, þegar talað er um náttúrufræði og náttúruvísindi. Eftir orðanna hljóðan eru það fræðin eða vísindin um náttúruna sjálfa, þ. e. um hinn hlutræna þátt tilverunnar, hina náttúrulegu hluti (rerum naturalis). Til þessa hlutræna þáttar telzt allt það, sem er skynjanlegt skilningarvitum vorum eða mælanlegt með þeim tækjum, er vér getum gert oss. Þessi víðtæka merking er nú samt ekki almennt lögð í orðið nátt- úrufræði og tæpast heldur í orðið náttúruvísindi. Aftur á móti er algengt að leggja þessa merkingu í orðið raunvísindi, dregið af raun í raunhæfur, real. Með raunhæfur er átt við það, sem reynt

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.