Náttúrufræðingurinn - 1959, Blaðsíða 43
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
201
DANMÖRK í SLAND
ST % ST. %
MÓÐU R MÁL 36 20.5 32 18.4
ERLEND MÁL 1 0 5.8 2 1 12.1
SAGA+LANDAFR. 1 8 10.5 22 12.6
STÆRÐFRÆÐI 24 14.0 25 14.4
NÁTTÚRUFRÆÐI 1 5 8.7 1 3 7.5
ANNAÐ 69 40.1 6 1 35.0
STUNDIR ALLS 1 72 100.0 1 74 100.0
TAFLA VI. Almennt gagnfrceðanám. 2 bekkir af barnaskóla og 3
bekkir af miðskóla, 4. bekk miðskólans sleppt.
í fyrsta lagi er náttúrufræðikennslan hjá Þjóðverjum og Dönum
að miklu leyti verkleg, hjá oss íslendingum að mjög litlu leyti,
nema í stærðfræðideildum menntaskólanna.
í öðru lagi hafa hinir erlendu náttúrufræðikennarar, sem og
aðrir kennarar, færri kennslustundir á viku en þeir íslenzku.
I þriðja lagi eru, að minnsta kosti í Þýzkalandi, gerðar meiri
kröfur til menntunar barna- og miðskólakennara en hér er gert.
íslendingar á eftir timanum.
Um ofangreindan eðlismun á náttúrufræðikennslunni hér á landi
og erlendis skal ekki fjölyrt á þessum stað, lieldur vísað í ofan-
nefnda grein í Menntamál. Það er ljóst, að enda þótt vér, eins
og vera ber, höfum leitazt við að sníða stundatöflur í íslenzkum
skólum eftir erlendum fyrirmyndum, þá hefur oss láðst að taka upp
eftir nágrannaþjóðum vorum önnur atriði, sem ekki eru síður
þýðingarmikil. Öll kennslutækni, og ekki hvað sízt í náttúrufræð-
um, er nú orðin mjög fullkomin hjá þeim þjóðum, sem vér höf-
um mest samskipti við, bæði austan hafs og vestan. Æfingasalir
með margs konar tækjum eru notaðir þar við kennslu í náttúru-
fræðum. Hér á íslandi eru tæpast til boðlegar veggmyndir, hvað
þá að gert sé ráð fyrir húsrými eða tíma til verklegra æfinga.
Þurrar yfirheyrslur, það er allt og sumt, sem látið er hér í té. Og