Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1959, Page 48

Náttúrufræðingurinn - 1959, Page 48
206 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN firði. Alls fann Páll þrennar samlokur og voru einar þeina með lifandi dýri; en því miður hafði hann engan þann vökva með sér, er hann gæti varðveitt dýrið í. Hin eintökin 2 voru það fersk, að ekki hefur verið liðið nema stutt frá dauða dýrsins. Með fundi þessum er því fullsannað, að sandskelin lifir hér við land. Stærsta eintakið, er ég fékk í hendur, var með 34 mm langar og 20 nnn breiðar skeljar; á hinum eintökunum mældust skeljarnar 24,4 X 15 mm og 17 X 10 mm- Sandskelin telst til smyrslingsættarinnar (Myidae); en sú ætt átti aðeins einn fulltrúa áður hér við land; Smyrslinginn (Mya trun- cata L.). í ætt. þessari gapa skeljarnar, aðallega að aftanverðu, og eru út- og innstreymisopin (Siphon) alveg samvaxin og geta teygt sig alllangt út úr skelinni; eru þau klædd utan móleitri og hrukk- óttri húð. Hjörin eru tannlaus, en inntengslin (Cartilago) eru fest á plötulaga iitskot, sem er á vinstri skel, og liggur lágur kjölur eftir útskotinu á ská frá nefbroddinum. Möttulbugur er stór. Sandskelinni hefur frá fyrstu tíð iðulega verið ruglað saman við smyrslinginn eða réttara sagt saman við afbrigði af honum, sem nefnt hefur verið: var. ovata Jensen. Bæði afbrigðið og sandskel- in hafa ávalan afturenda (ekki stýfðan eins og venjulegur smyrsl- ingur) og geta því oft orðið nákvæmlega eins að lögun. Það er þess vegna alls ekki öruggt að greina tegundirnar sundur eftir lit eða lögun skeljanna, heldur verður að fara eftir gerð nefsins og tengslaplikunnar, svo og vídd möttulbugsins. A sandskelinni ligg- ur kjölur tengslaplötunnar út yfir rönd hennar, svo að greinileg tönn kemur í ljós á plötujaðrinum; auk þess er utanvert við ræt- ur plötunnar lítil en greinileg hola inn í skeljarnefið. Bæði þessi einkenni vantar smyrslinginn. Sé möttulbugur þessara tveggja teg- unda borinn saman, er augljóst, að bugur sandskeljarinnar er nokkru þrengri. Lengi vel var því haldið fram að sandskelin lifði við Grænland, Island, Svalbarða, í Karahafi og víðar í hinum svellkalda sæ norð- ursins. En rannsóknir síðari ára hafa sannað, að öll eintök frá nefndum slóðum, sem heimfærð liafa verið til sandskeljarinnar, séu smyrslings-afbrigðið v. ovata. Það er því mjög örðugt að segja um það með vissu, livar norðurtakmörk sandskeljarinnar eru í raun og veru. Eftir beztu heimildum er ætlað, að útbreiðslan sé nokkurn veginn sem hér segir: Við strendur Evrópu: frá Biskay-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.