Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1959, Page 15

Náttúrufræðingurinn - 1959, Page 15
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 9 ar áttir. Ekki er vitað um neinar aðrar leiðir til þess að stjórna hreyfingum plasmans. Engin tilraun með efni í plasma-ástandi verður því gerð án þess að nota segulsvið, og öll tæki til slíkra rannsókna byggjast að einhverju leyti á segulverkunum. Upphitun plasmans. Til þess að hægt sé að liagnýta orku léttra atómkjarna verður, eins og áður var á minnst, fyrst og fremst að framleiða hita, sem nemur tugum eða hundruðum milljóna gráða. Það er því áríð- andi að finna öruggar aðferðir til þess að snögghita plasmað. Þess var áður getið, að plasma mætti framleiða með því að senda sterk- an rafstraum í gegnum þunnt gas. Rafstraumurinn hitar einnig plasmað, en eftir því sem hitinn stígur, minnkar rafstraumsvið- námið og þar með hitaverkanir rafstraumsins. Talið er erfitt að komast mikið yfir milljón gráður með rafstraumsupphitun einni saman. Með samþjöppun má komast miklu hærra. Þegar lofti er þrýst saman hitnar það og það sama skeður með plasmað. Samþjöppun- in fer fram í sterku segulsviði. Ef plasmað er í segulflösku, eins og áður var lýst, þarf ekki annað en að auka segulsviðið. Kraftlínur sviðsins færast þá að miðjunni og plasmað fylgir þeim og þjappast saman í miðri flöskunni. Samþjöppunin getur einnig farið fram í fleiri þrepum. Eftir að nokkur samþjöppun hefur átt sér stað { stórri segulflösku, má láta segulsviðið ýta plasmanum inn í aðra minni, þar sem auðveldara er að framkalla mjög sterkt segulsvið, sem annast lokastig samþjöppunarinnar. Ýmsir fleiri möguleikar eru til upphitunar. Einn er í því fólg- inn að láta breytilegt segulsvið verka á nokkurn hluta plasmans. Þetta er einskonar seguldæla, sem dælir orku inn í plasmað og hitar það upp. Onnur leið til upphitunar byggist á því að senda mjög hraðskreiðar agnir, t. d. þunga vetniskjarna, inn í segulflösku, sem heldur þeim föstum. Hraðaorkan breytist þá í varma, svo að úr þessum hraðskreiðu ögnum ætti að geta myndast mjög heitt plasma. Ekki verður hjá því komizt, að mikill vanni tapist frá margra milljón gráðu heitu plasma. Þar er fyrst og fremst um að ræða varmageislun efnisins, sem ekki virðist nokkur leið að hindra, en

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.