Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1939, Qupperneq 11

Náttúrufræðingurinn - 1939, Qupperneq 11
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 103 Jiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiimimiiiiiiiiiiiiimmiiiiiiiiiimiiiiiiiimiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiimiiimiiimiiiiiimiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii r Avarp til lesenda Náttúrufræðingsins. í haust eru liðin 2 ár síðan Atvinnudeild Háskólans tók til starfa. Var svo til ætlazt, þegar deildin var stofnuð, að hún tæki upp til rannsókna hagnýt efni í þágu atvinnuveganna. Þessari stefnu hefir Fiskideildin fylgt frá byrjun. Öllu hennar starfi hefir verið þannig hagað, að árangurinn af rannsóknunum yrði til fram- dráttar íslenzkri útgerð, þegar fram líða stundir, sem og veiðum í ám og vötnum. Ef starf Fiskideildarinnar á að koma að tilætluðum notum, er nauðsynlegt að hún gefi út ritgjörðir um árangur rannsókn- anna, og eins og sakir standa skortir deildina bolmagn til þess að standa straum af slíkum kostnaði, en óvænlegt til styrkja, til þess að létta undir. Það er því áform mitt, að reyna að bæta nokk- uð úr þessu með því að leita til almennings, til þess að afla fastra áskrifenda að þeim ritum, sem deildin gefur út, en á undirtekt- unum byggist það, hvort nokkuð verður gefið út í náinni fram- tíð, og á fjölda áskrifenda veltur, hve mikið kemur út á ári. Ef málaleitun mín fær góðar undirtektir, mun verða hafizt handa um útgáfu þegar í stað, og munu rit þau, sem út verða gefin, verða þrenns konar: 1. Árleg skýrsla um störf Fiskideildarinnar, fiskirannsóknir annarra þjóða við Island, ásamt yfirliti yfir rit þau um íslenzka fiskifræði, sem út hafa komið á öðrum málum. 2. Ritgjörðir um rannsóknir fiskideildarinnar og árangur þeirra. 3. Alþýðleg fræðslurit um ýmis málefni, er snerta útgerðina. Atvinnudeildin hefir nú til efni í margar ritgjörðir um rann- sóknir sínar, og vil ég þar helzt nefna (væntanleg heiti ritgjörð- anna): 1. íslenzki þorkstofninn 1937—1939. 2. íslenzki síldarstofninn 1937—1939. 3. Síldveiði — síldaráta — svif. 4. Ýsurannsóknir 1935—1939. 5. Lúðurannsóknir 1938—1939. 6. íslenzki ufsastofninn 1938—1939. 7. Steinbítsrannsóknir 1936—1939. 8. íslenzka loðnan. 9. Rækjur og leturhumar. 10. Kúskel og kræklingur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.