Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1939, Qupperneq 14

Náttúrufræðingurinn - 1939, Qupperneq 14
106 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 111111111111111111111 ■ 1111111111 ■ 1111111111111111111111111111111 i 1111111111111 i 1111 ■ 11111111111111111111111111111111111111 ■ ■ 1111111111 ■ i 111111111 ■ 11111 ■ I ■ ■ I ■ ■ ■ 11 munu þeir hafa komið austan og sunnan að, frá látrum úr Borg- arfirði, Melasveit og Leirárvogum. Um sama leyti fór kæpan og ungselurinn að halda sig að látrunum. f fjórðu viku sumars fóru að sjást nýgotnir kópar. Þegar ui*tan var styggðarlaus á sundi, var hún að leika við kópinn og „kyssa“ hann, þannig að þau ráku saman trýnin í sífellu. Kæmi sjófarandi nálægt, þá tók urtan alltaf á rás undan og barði kópinn í kaf, til þess að kenna honum að forða sér. Fyrir og um síðustu aldamót voru mikil selalátur í árósum við norðanverðan Faxaflóa, þótt allmikill munur væri á selatekjunni eftir staðháttum. Um 1860 kæpti töluvert af látursel uppi í Hvítá, en þar voru þá austustu látrin. Andrési Fjeldsted, sem þá bjó á Hvítárbakka, hefir sjálfsagt þótt selurinn spilla laxveiði í ánni, enda gerði hann aðsúg að honum, og hvarf hann þá þaðan. Næst fyrir norðan má telja Langárósinn, en þar var þá töluvert um sel, og í Álftárós og Hítárós var afar-mikið af honum. f Haf- fjarðarós var minna, en í Straumfjarðarárós mikið. Þar að auki var urmull af sel við Hvalseyjar og talsvert í Vogi. Laust fyrir aldamótin gerði ég mér ferð á miðju sumri vestur um selastöðv- arnar og komst lengst sunnan til í Staðarsveitina. Ég fékk bezta veður í ferðinni, landátt með hægviðri. Veiðitími var þá löngu um garð genginn, en ég gleymi því aldrei, hvílík ótrúleg mergð gat verið til af sel um þessar slóðir. En eftir frostaveturinn mikla, 1918, stráféll selurinn á öllu þessu svæði úr lungnadrepi, og mest á sumrin, þegar hann var magrastur. Eftirtektarsamur og sann- sögull maður, sem var við heyskap á Akranesi við Hítárós, sagði, að átakanlegt hefði verið að heyra andarteppu-hrygluna og „sog- in“ í selnum, sem lá þarna á eyrunum um fjörurnar. Annað hvort drapst selurinn í hrönnum, eða hann flúði burt frá þessum slóð- um, því að á skömmum tíma féll kópatekjan allsstaðar niður í um einn tíunda hluta af því, sem> hún hafði verið áður, og stóð svo í nokkur ár, en því miður hefi ég ekki getað fylgzt með því, síðan ég fluttist úr þessu byggðarlagi, að hve miklu leyti ástandið hefir breytzt til batnaðar. Selir þeir, sem fundust dauðir úr þessari pest, voru upptærðir af megurð, en lungun visin og biksvört. Ég sá þetta því miður ekki sjálfur, en tek þá menn trúanlega, sem mér sögðu. Ég kom litlu síðar að Látrum og Svefneyjum á Breiðafirði, og þar var sögð sama sagan, að kópaveiði hefði minnkað þar stórum á sama tíma og sunnan Jökuls, en ekki eins mikið og þar. Líka
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.