Náttúrufræðingurinn - 1939, Blaðsíða 28
120 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
•..
lengur. Á þennan hátt hafa menn komizt að raun um, að hægt er
að sjá 16 metra niður í Eystrasalti, 7—16 metra niður í Skagerak,
60 metra niður í Miðjarðarhafið (við Sýrlands-strendur) og 66.5
metra niður í Þanghafið, en það hefir reynzt tærast allra hafa, sem
rannsökuð hafa verið á þennan hátt. En nú er sólarljósið, eins og
kunnugt er, sett saman úr geislum með ýmsum bylgjulengdum. Og
það hefir sýnt sig, að eftir því, sem bylgjulengdin er styttri, eftir
því komast ljósgeislarnir lengra niður í sjóinn. Á tveggja metra
dýpi er ekki eftir nema 50% af rauðu geislum Ijóssins, sem skín
á yfirborðið, 80% af þeim gulu, 90% af þeim grænu, en 95% af
þeim fjólubláu. Hinir rauðu og gulu geislar sólarljóssins komast
því skemmst niður í sjóinn, en af því leiðir, að hlutir, eða fiskar,.
sem eru gulir eða rauðir, sýnast svartir. Ef við gætum staðið niðri
á mararbotni á 400 metra dýpi og athugað fiskana, myndi okkur
sýnast „sá guli“, þorskurinn, alveg kolsvartur, og sömuleiðis karf-
inn, en ef þar væri líka steinbítur eða grásleppa, myndum við
sennilega skynja bláa litinn á þeim, og sýnast þau ljósari en hinar
tegundirnar tvær. í vel gagnsæjum, heitum höfum, þar sem sólar-
ljósið er mjög sterkt, virðast útfjólubláu geislarnir geta komizt
niður á a. m. k. 1000 metra dýpi, en þar eru þeir orðnir svo veikir,
að þeir þurfa hátt á annan klukkutíma til þess að hafa áhrif á næm-
ustu Ijósmyndaplötu.
Eftir þessum staðháttum verða fiskarnir, sem lifa á miklu dýpi,
að laga sig. Ef þeir eiga að geta notið hinna fátæklegustu leifa
sólarljóssins að ofan, verða
augu þeirra að vera alveg
sérsaklega til þess útbúin.
Ef við lítum á 6. mynd
(Opistoproctus soleatus),
sjáum við, að augun eru að
lögun og stellingum engu
líkari heldur en tvíeygðum
sjónauka. Verður að líta svo á, að náttúran hafi gert þessa ráð-
stöfun til þess að hagnýta ljósið, sem þarna er af ákaflega skorn-
um skamti.
Önnur staðreynd, sem mælir með því, að augu af þessari gerð
séu sérstaklega ver fallin til þess að taka á móti ljósinu, er það,
að margar fiskilirfur (álar), sem lifa á djúpu vatni, hafa augu af
þessari gerð (sjá 7. mynd), en seinna, þegar lirfan breytist í full-