Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1939, Side 45

Náttúrufræðingurinn - 1939, Side 45
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 137 lllllllllllllll■■lll■l■llllmllllllllllllllllllllllllllllllllllllll■lllll■■l■lll>■||■||||||||||||■llllllllllllllllllllll■llllll■lllllllll■lllllllllllllllllll■l Skarifífill (Leontodon auctumnal- Islandsfífill (Hieracium islandic- is).x um).x Fellafífill (Hieracium alpinum). Hér eru þá samtals greindar 198 tegundir, en auk þess sá ég nokkuð af erlendum slæðingum, sem uxu í sáðsléttum, nefnilega: Agrostemma githago, Lolium perenne, Chrysanthemum leucant- hemum, Echium vulgare og Trifolium pratense (Rauðsmára). Slæð- ingarnir hafa engin íslenzk nöfn, nema rauðsmárinn, en mætti þó nefna a. m. k. til bráðabirgða: Agrostemma = akurrós, Chrys. leuc. =hempukragi og Echium = nöðrugin. Ingófur Davíðsson. Grimraar álftir. Skammt frá bænum Tjörn í Biskupstungum er dálítið stöðu- vatn, samnefnt bænum. Þar hafa um margra ára skeið orpið álftir á hverju vori, enda eru skilyrði þar hin ágætustu fyrir álftavarp, gnægð hólma í vatninu og mikið æti. Síðastliðið vor tóku tvenn álftahjón sér bólfestu við vatn þetta og urpu þar. Þau virtust kunna sambýlinu vel, höfðu hægt um sig (í fyrstu) og sýndu enga ófriðarviðleitni, hvorki sín á milli né út á við. — En svo brá við, eftir að ungarnir komu til sögunnar, að önnur hjónin tóku mjög að ofsækja sauðkindur, sem komu í nánd við hreiður þeirra. Sáust þau oft ráðast á þær heiftarlega, lemja þær með vængjunum af mikilli grimmd og stökkva þeim á flótta. Þessu héldu þau á- fram þar til þau að lokum voru skotin, eftir að hafa drepið tvær lambær með stuttu millibili. — Yoru ærnar steindauðai', þegar að var komið, og hræðilega beinbrotnar. Enda þótt ég þekki engin önnur dæmi þess, að álftir am- ist þannig við sauðkindum, sem gerast nærgöngular ungum þeirra, mun það eigi vera óalgengt, samkvæmt upplýsingum B. Sæm. — um þetta atriði — í Fuglunum. Eyþór Erlendsson. Frá Helgastöðum.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.