Náttúrufræðingurinn - 1939, Blaðsíða 58
150 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111
um, gleði þeirra og sorgum, ef svo mætti að orði komast. Ber
þetta vott um hina glöggu athygl.isgáfu höfundarins og hversu
sýnt honum er um að miðla öðrum af þekkingu sinni.
Ég efast ekki um, að fuglabók Magnúsar Björnssonar verði
mikið lesin, og þykir mér líklegt, að svo fari fyrir mörgum,
sem bókina lesa, að viðhorf þeirra til fuglanna breytist á þann
hátt, að þeir hafi af því meiri ánægju eftir en áður að veita
lífi þeirra og háttum athygli. Fuglarnir eiga það líka vissulega
skil.ið. Við gerum okkur oft og tíðum ekki fyllilega ljóst,
hversu mikinn þátt þeir eiga í því, að setja lífrænan og mild-
andi svip á okkar hrjóstruga land.
Finnur Guðmundsson.
Orðsending.
Kaupendur Náttúrufræðingsins utan Reykjavíkur eru: vinsarrí-
legast beðnir um að senda andvirði yfirstandandi árgangs til mín
— sex krónur — þegar í stað. Náttúrufræðingurinn mun verða
gerður eins vel úr garði framvegis eins og áður hefir verið, þrátt
fyrir aukinn útgáfukostnað, án þess að verðið hækki nema ítrustu
nauðsyn beri til.
Einnig væri ég mjög þakklátur vinum ritsins fyrir af afla því
góðra nýrra kaupenda. Ennþá eru til nokkur eintök frá byrjun (1.
—8. árg.) og fást þau með 33% afslætti með staðgreiðslu, eða
fyrir kr. 32.00.
Árni Friöriksson.
■Jhd -go 'JÍ.l .n::’? c
!. u.í. •ííiV.i.f' x>o vt':1 j •
uí'Ji.r? ú; f'Tiií'r.v; r m ■TV,r; ;f-rr: