Náttúrufræðingurinn - 1940, Side 70
162
N ÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
teg. eru bláklukka (Campanula rotundifolia), gullsteinbrjótur
(Saxifraga aizoides), maríuvöttur (Alchemilla faeroensis), fagur-
blóm (Trientalis europea) og súrsmæra (Oxalis acetosella), sem
aðeins hefir fundizt í Borgarfirði eystra. Hinar fjórar eru al-
gengar á Austurlandi. Þær finnast að vísu víðar, en einkennis-
jurtir eru þær aðeins í austurhluta landsins. Er þar að sumu
leyti sérstæður jurtagróður., Auk lyngbúans sá ég tvær aðrar
jurtir í Njarðvík, sem ekki er áður getið frá Austfjörðum. Það
eru dúnhlustrastör (Carex pilulifera) og eggtvíblaðka (Listera
ovata). Vaxa þær í Tóarfjalli, Kerlingarmóum og Grjótafjalli. Á
þessum stöðum er einnig óvenjumikið af umfeðmingi (Vicia
cracca). Vex hann hvarvetna innan um lyng og kjarr í Njarðvík.
Gullkollur (Anthyllis vulneraria) er algengur, einkum á sjávar-
bökkum framan í Tóarfjalli og er mjög þroskalegur. (Var hann
áður fundinn þar af Helga Jónssyni.) Eru norðurhlíðar Njarðvík-
ur mjög gróðursælar og fagrar, algrónar lyngi og lágu kjarri.
Er þar aðalbláberjaland mikið.*)
LEIÐRÉTTING.
Nokkrar meinlegar prentvillur hafa slæðzt í ritgerð Jakobs
Líndals: Mælifellshnjúkur, Nátt. X. árg. bls. 51—67. Þessar hafa
fundizt:
Á bls. 55, 4. 1. að ofan komi efri lögum í stað efni lögum.
-----60, 11. 1. að neðan komi aukapinklum í stað augaþenklum.
-----61, 5. 1. að neðan komi hnjúksröðlinum í stað hnjúks-
söðlinum.
-----61 undir myndinni komi röðlinum í stað söðlinum.
-----65,. 3. 1. að ofan komi röðli í stað söðli.
*) Lyngbúinn vex í Noregi allt norður á 70°. Einnig finnst hann í
Danmörku, einkum á Vestur- og Norður-Jótlandi.