Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1970, Page 19

Náttúrufræðingurinn - 1970, Page 19
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 143 fer að nálgast 700° C, en fari venjulega fram við liita milli 700° og 900° C. Gjóskan í gjóskuhlaupunum er yfirleitt súr (líparít) eða ísúr (einkum dasít), en lítið sem ekkert er um basísk gos, sem myndað hafa ígnimbrít. í Dyngjufjöllum ytri er mjög þykkt lag af túff- breksíu, sem m. a. myndar hamra í vesturhlíð Dyngjufjalladals. Þessi breksía er ekki lagskipt, og hollenzku jarðfræðingarnir R. van Bemmelen og M. Rutten, sem könnuðu liana sumarið 1950, telja hana vera gjóskuhlaupsset (v. Bemmelen og Rutten 1955). Flikruberg er þetta ekki, og þótt þetta lag sé nokkuð frábrugðið venjulegri móbergsbreksíu, tel ég eftir lauslega athugun á þessum lögum alls ekki sannað, að hér sé um gjóskuhlaupsset að ræða, en bíð úrskurðar Guðmundar Sigvaldasonar um það, en hann vinnur að heildarrannsókn á Dyngjufjöllum. Það set, sem gjóskuhlaup mynda, gengur undir ýmsum nöfnum í vísindaritum. í þessari grein nota ég, eins og raunar G. P. L. Walker hefur áður gert (Walker 1966), ignimbrít sem samheiti á slíku seti, hvort sem það er sambrætt eða ekki, en flikruberg nota ég, eins og Tómas Tryggvason, aðeins um sambrætt gjóskuset. í dæmigerðu gjóskuseti, svo sem í hinu fræga og vel kannaða Bishop tuff í suðausturhluta Kaliforníu, er efsti hlutinn sam- breyskja vikurs og ösku og tiltölulega léttur í sér (eþ. 1.3—1.5). Þegar kemur niður á 50 m dýpi eða svo er túffið sambrætt og eðlisþyngdin orðin um 2 og ennþá neðar, þar sem túffið er þéttast, er eðlisþyngdin 2.35. Neðsti hluti Bishop ignimbrítsins er vikur, lítt samanþjappaður. Bishop-túffið þekur um 1000 km2 og meðal- þykktin er um 150 m, rúmmálið því um 150 km3, eða tólffalt meira en rúmmál Skaftáreldahrauns. Flið sambrædda túff, flikrubergið, hefur tilhneigingu til stuðl- unar (3. mynd) og stuðlarnir eru oftast ferstrendir, sjaldnar fimm- eða sexstrendir. Þegar þunnsneiðar flikrubergs eru skoðaðar í smá- sjá, sést að það samanstendur venjulega að mestu leyti af glerkorn- um, en þó er oft mikið af dílum í því og sveigjast glerkornin alla- vega um þessa díla. Flikrurnar eru, sem fyrr getur, vikur, sem hefur þjappazt saman. Framandsteinar eru algengir í ignimbríti, enda eðlilegt, þar sem það er niyndað í kröftugum sprengigosum. Enn er að nefna eitt sérkenni, sem oft er að finna í flikruberginu og því rneir sem það er súrara, en það er afglerjun (devitrification).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.