Náttúrufræðingurinn - 1970, Side 28
150
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
í Þórsmörk hef ég rakið lagið frá vestasta Merkurrana (Eggjum)
inn með norðurjaðri Krossáraura til Búðahamars og nokkuð austur
fyrir hann (6. mynd). Vestan til í Merkurrana er lagið ekki nema
fárra metra þykkt, það sem til sést. Það kemur einnig fram norðan
í Rananum. í Tröllabúðum er lagið um 20 m þykkt, það sem til
sést, og er efri hluti þess, svo sem fyrr getur, aðallega sambreyskja
Ijóss vikurs, en þó með dökkum molum (mynd IV a), og er lagið
svo laust í sér, að skriða frá því þekur brekkuna alveg niður í aura,
en ef að er gáð er undir jressu ljósa lagi lag af vikursambreyskju,
mun dekkri, og þar undir flikruberg, ljósgrátt, sem nær niður fyrir
núverandi yfirborð Krossáraura. Sunnan í Valahnúk er ekkert
ignimbrítlag til að sjá, en flikrubergið gráa er þó að finna þar
neðst í hömrunum á kafla. Auðveldast er Þórsmerkurförum að
kanna ignimbrítið framan í hryggnum milli Langadals og Slyppu-
gils. Þar er að finna öll afbrigði þess. Neðst er grátt flikruberg
(mynd IV b) með tilhneigingu til ferstrendrar stuðlunar (mynd
II b). Of'an á þessu flikrubergi er vikuisambreyskja með bæði ljós-
um og dökkum vikri, þó meira af ljósum, og J:>ar á ofan dekkra
sambreyskjulag, sem virðist nokkuð mislægt við það sem undir er,
og kynni að vera úr öðru gosi, en þó þarf það ekki að vera. Frá
Slyppugili og austur fyrir Enda er lagið víða mjög áberandi (mynd
II a) og nær allt að 30 m þykkt, það sem til sést, en er vafalítið all-
miklu Jrykkra, því hvergi sést Jrarna undir flikrubergið, sem er að
finna neðst í hömrunum.
Norðar í Mörkinni kemur lagið hér og Jrar fram og er þó ekki
fullkannað hve víða. Mola af flikruberginu getur að líta á leiðinni
milli Langadals og Húsadals, Langadalsmegin. Lagið kemur fram
bæði norðan í Tindfjöllum og í Tindfjallagili og gengur greinilega
inn undir Svínatungurnar, og úr lofti hef ég séð það í giljum allt
austur að Rjúpnafelli. Upp af Búðarhamri sést stórt, köntótt stykki
úr þessu lagi í móbergi, sem liggur langtum ofar, og er hér um fram-
andstein (xenolith) að ræða. Víðar en í Tröllabúðum er að finna
hið næsta ofan á ignimbrítinu dökkbrúnt túfflag, sem virðist mynd-
að af venjulegu gjóskufalli.
Sunnan Krossár hef ég rakið ignimbrítið frá skúta upp af Fagra-
skógi og nokkuð inn fyrir Gölt. Það er áberandi og næsta Joykkt
í hömrum austan við mynni Hvannárgljúfurs. Norðan í Álfakirkju
er mjög ljós og áberandi blettur af þessu lagi, enda að langmestu