Náttúrufræðingurinn - 1979, Qupperneq 70
þeirra fugía senr ekki urðu ákvarðað-
ir nákvænrlega, oftast vegna fjarlægð-
ar. Slíkir fuglar voru að jafnaði fáir
og fækkaði eftir því senr á leið.
Flokkun húsanda í kyn- og aldurs-
lrópa byggist í stuttu máli á eftirfar-
andi einkennunr (sbr. 1.—3. mynd).
Fullorðnir stcggir: Steggir í október-
júní senr virðast tilsýndar vera í full-
unr skrautbúningi. Á mjög stuttu færi
nrá oft greina svarta bletti í livíta litn-
unr á sumum steggjunr og eru það
sennilega tiltölulega ungir fuglar, e.
t.v. tveggja ára. Þetta er þó sjaldan
hægt og eru þessir fuglar því taldir
nreð fullorðnum steggjunr, enda þótt
þeir séu sennilega ekki kynþroska.
Sömuleiðis er hægt að flokka full-
orðna steggi á vorin (apríl-maí) eft-
ir því lrvort þeir verja landhelgi, en
sú flokkun er ekki notuð hér. Ungir
steggir eru steggir á fyrsta ári. Þeir
eru í sérstökum ungfuglsbúningi senr
er þekkjanlegur frá því í október-
nóvember og fram í júní. Þeir líkjast
kvenfuglum en eru stærri, hvítir á
bringu og nreð vott af hálfmánabletti
við nefrót, en nefið er aklirkkt. —
Ungir og fullorðnir steggir í felubún-
ingi (júlí-september) verða ekki
greindir að. Þeir minna á kvenfugla,
en eru miklu stærri og dekkri á baki
og með dökkt höfuð sem er ennis-
hærra og lilutfallslega stærra en á
kvenfuglum. Fullorðnir kvenfuglar
í október-maí einkennast af meira eða
minna appelsínugulu nefi og ljósgul-
um augum. Þessi skæri neflitur getur
náð yfir næstum allt nefið, en myndar
venjulega misjafnlega breiða riind
framan til á því, oltast aftur að nös-
um. Ungir kvenfuglar hafa ekki þenn-
an skæra neflit og nefið virðist meira
eða minna dökkleitt, þeir eru auk
þess með gulbrúnleit augu. Erfitt er
að greina unga kvenfugla frá fullorðn-
unr nema á stuttu færi, og þar við
bætist að kvenfuglar sem gætu verið
tveggja ára ókynþroska fuglar eru í
útliti mitt á milli þessara tveggja
hópa. Þessir síðastnefndu kvenfuglar
eru taldir með fullorðnu fuglunum
hér. Þegar varp hefst hverfur skæri
nefliturinn á fullorðnu kvenfuglunum
og verða þeir ekki nánar flokkaðir
nreð vissu frá maílokum fram í októ-
lrer. Ungar: Dúnungar eru auðgreind-
ir, ungar á fyrsta hausti líkjast kven-
fuglum en eru grárri og litaskil öll
óglögg. Nefið er clökkt og augun brún.
Kynin verða venjulega aðgreinanleg
á lit í október-nóvember á fyrsta
lrausti.
Almenn útbreiðsla
Húsöndin er hingað komin vestan
um haf og er ein örfárra fuglategunda
hér á landi sem eru örugglega af
norðuramerískum uppruna. Hinar
eru himbrimi (Gavia immer (Brúnn-
ich)), straumönd (Histrionicus histri-
onicus (L.)) og rjúpa (Lagopus rhutus
islandorum (Faber)).
Útbreiðslusvæði húsandar er ein-
kennilega tvískipt og svipar mjög til
útbreiðslu straumandar en er enn
takmarkaðra. Hún er algengur varp-
fugl í vestanverðri Norður-Ameríku
(Palmer 1976). Aðalheimkynnin eru
Breska Kólumbía og nálæg ríki: Suð-
ur-Alaska, Suðvestur-Yukon, Vestur-
Alberta, svo og hlutar af Washington,
Oregon, Wyoming og Montana. Hús-
endur hafa einnig orpið í fjalllendi
Norður-Kaliforníu og Kólóradó. Á
vesturhluta útbreiðslusvæðisins eru
164