Náttúrufræðingurinn - 1990, Side 9
TÖLUR UM FELLIBYLJI -
FLOKKUN FELLIBYLJA
Þrýstingur í fellibyljum á Atlants-
hafi fer sjaldan niður fyrir 940 mb, þó
metið sé mun neðar eða 888 mb (í
fellibylnum Gilbert 1988). í Kyrrahafi
eru skilyrðin betri, bæði eru fellibyljir
fleiri en í Atlanshafi og þeir verða
dýpri. Lægsti þrýstingur sem vitað er
um mældist í fellibylnum Tip 1979
(870 mb) og er það jafnframt lægsti
þrýstingur sem vitað er um við sjávar-
mál á jörðinni.
Fellibyljir eru um 20 á ári að jafnaði
á vestanverðu Kyrrahafi norðan mið-
baugs, en 8 til 10 á því austanverðu. A
Atlantshafi er meðaltalið um 6 á ári.
Fellibyljir eru einnig nokkuð algengir
á Indlandshafi, bæði norðan og sunn-
an miðbaugs og á Kyrrahafi sunnan
miðbaugs. Flestar skráðar hitabeltis-
lægðir á Atlantshafi á einu ári eru 21,
en það var árið 1933. Árið 1969 urðu
alls 12 hitabeltislægðir að fellibyljum á
Atlantshafi, en árin 1907 og 1914 er
ekki vitað um neina. Lífseigasti felli-
bylur sem vitað er um á Atlantshafi er
Ginger 1971, sem taldist fellibylur í 20
daga og hitabeltislægð í aðra 9 til við-
bótar. Sleppi fellibylur norður fyrir
50. breiddarbaug er venjulega hætt að
telja. Fellibyljatíminn á Atlantshafi
stendur venjulega frá byrjun ágúst
fram í miðjan október. Stundum
verða þó til fellibyljir utan þessa tíma.
Sá fyrsti sem vitað er um síðla vetrar
varð til 7. mars, en hinn síðasti að
hausti 31. desember. Mest er vitað um
fjóra fellibylji samtímis á Atlantshafi.
Vegna þess hve auga fellibyls er lít-
ið eru líkur á að einhver ákveðinn
staður verði fyrir fellibyl í versta ham
mjög litlar. Smáeyjar Karabíska hafs-
ins geta þannig sloppið áratugum sam-
an.
FELLIBYLJASPÁR
Eins og oft kemur fram af fréttum
er mjög erfitt að spá fyrir um braut
fellibyls. Á eyjum Karabíska hafsins
svo og í Kyrrahafinu eru forn veður-
merki mjög í heiðri höfð. Einkum er
fylgst vel með briminu við ströndina
sem er yfirleitt mjög reglulegt. Ef
hljóðið breytist og ef tíminn milli
brota breytist geta veðrabrigði verið í
nánd. Einnig er mjög vel fylgst með
skýjafari. Loftþrýstingur er mjög stöð-
ugur á þessum slóðum, yfirleitt milli
1010 og 1025 mb.
1 Karabíska hafinu og reyndar víðar
nota menn nokkuð sérstaka loftvog,
svokallaðan stormsvan. Þetta er
glerpípuútbúnaður með vatni í. í
stormsvaninum er rými með innilok-
uðu lofti sem vatn hindrar að komist
út. Svo lengi sem loftþrýstingur er hár
eða breytist lítið, helst vatnið í pípun-
um, en þegar þrýstingur fellur þenst
innilokaða loftið út og þrýstir vatni út
um háls svansins, sem þannig varar
við lækkandi loftþrýstingi með því að
gusa vatni útúr sér.
Almenningur gerir sér oft litla grein
fyrir umfangi fellibylja og margir trúa
því ekki hversu alvarlegt fyrirbrigði er
hér um að ræða. Þetta gerist ekki síst
fyrir það að nauðsynlegt er að vara
við á miklu stærri svæðum en síðan
verða fyrir tjóni og því verður oft
minna úr en fjölmiðlar gáfu til kynna
að orðið gæti. Árið 1938 fór allöflugur
fellibylur yfir norðausturríki Banda-
ríkjanna. Þá fórust um 600 manns. Af
þessum 600 voru allmargir sem höfðu
farið gagngert niður á strönd til að sjá
fellibyl koma að landi. Á undanförn-
um árum hefur heldur dregið úr
manntjóni af völdum fellibylja í
Bandaríkjunum en eignatjón hefur
farið heldur vaxandi. Manntjón er oft
mikið í öðrum heimshlutum af völd-
um fellibylja og minnast margir stór-
63